Körfubolti

Dabbi kóngur tekur við kvenna­liði Þórs

Stefán Árni Pálsson skrifar
Davíð Arnar er uppalinn leikmaður Þórs Þorlákshafnar og leikur sjálfur með liðinu í næst efstu deild á næsta tímabili. 
Davíð Arnar er uppalinn leikmaður Þórs Þorlákshafnar og leikur sjálfur með liðinu í næst efstu deild á næsta tímabili.  Vísir/Bára Dröfn

Davíð Arnar Ágústsson, oft kallaður Dabbi kóngur, hefur verið ráðinn aðalþjálfari kvennaliðs Þórs Þorlákshafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Fyrr í sumar var ákveðið að slíta samstarfi Hamars og Þórs og mun því Þór leika í 1. deildinni.

Félagið tilkynnti einnig að Jóhanna Ýr Ágústsdóttir hefði endursamið við félagið og myndi leika með liðinu á næsta tímabili. Þau Davíð og Jóhanna eru systkini.

„Ég er gríðarlega ánægður með að fá þetta tækifæri til þess að þróa og byggja upp öflugt lið í meistaraflokki kvenna hjá félaginu mínu. Þetta verður bæði skemmtilegt og krefjandi verkefni og ég hlakka mikið til að takast á við það með leikmönnum, stjórn og öllu stuðningsfólki félagsins,“ segir Davíð Arnar í tilkynningunni.

„Ég lagði mikla áherslu á að Jóhanna myndi spila fyrir Þór Þorlákshöfn. Hún er ein af efnilegustu leikmönnum landsins og hefur alla burði til að ná mjög langt. Það verður gaman að vinna með henni áfram og hjálpa henni að þróa leik sinn enn frekar á komandi árum,“ segir Davíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×