„Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ Stefán Árni Pálsson skrifar 24. júní 2026 07:30 Gunnlaugur tók æfingahringi með Patrick Reed, Bryson DeChambeau og Scottie Scheffler í aðdranganda mótsins. vísir/lýður/getty Gunnlaugur Árni Sveinsson skráði nafn sitt í íslensku golfsöguna fyrir helgi þegar hann varð sá fyrsti til að taka þátt á opna bandaríska meistaramótinu. Hann hefði samt sem áður viljað spila betur.
Gunnlaugur endaði í 155. sæti á mótinu eða því neðsta af þeim sem spiluðu tvo fyrstu hringina. Það gekk á ýmsu hjá Gunnlaugi á þessum afar krefjandi golfvelli en það voru heimsklassa kylfingar í vandræðum á Shinnecock Hills-golfvellinum. Gunnlaugur endaði fyrstu tvo hringina á plús 21 höggi og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. „Þetta var náttúrulega bara draumur að rætast. Var þetta meira en ég bjóst við? Ekki beint. Ég hef fylgst með þessum mótum endalaust og verið áhugamaður um þau, þannig að ég svona gat séð fyrir mér hvernig þetta yrði,“ segir Gunnlaugur og bætir við að það hafa óneitanlega verið einkennilega að það hafi mikið verið að hnippa í hann til að mæta í viðtöl eftir æfingahringi. Gulli er aðeins tvítugur og var einn af tæplega 160 keppendum á þessu móti. Um tíu þúsund kylfingar reyna að komast inn á þetta mót. Því er afrekið hans mikið. „En þetta er bara eitthvað sem maður þarf vonandi að venjast og njóta þess. Að spila með þessum bestu kylfingum heims, ég þyrfti kannski að venjast því og líða betur í því umhverfi. Í lok dags eru þetta bara gæjar eins og ég. Ég er bara mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum að spila með einhverjum guttum.“ Hausinn var erfiður viðureignar En var skrítið að spila hringi með mönnum eins og Patrick Reed, Bryson DeChambeau og Scottie Scheffler? „Ekki beint. Þetta var eiginlega meira í hausnum mínum svona fyrir fram. Það gerist þegar maður lítur svona mikið upp til þeirra. Þeir voru að grínast innbyrðis og gera grín hvor að öðrum og fíflast bara eins og við gerum og ég geri með vinum mínum hérna heima.“ Gunnlaugur segir að árangurinn hafi verið súrsætur. „Þetta var í rauninni bara eitthvað svona tauga-mental dæmi sem kom fyrir og hérna eftir á að hyggja er þetta bara frábært. Maður fékk smá tusku í andlitið og ég mun læra mikið. Ef ég hefði rétt misst af niðurskurði þá kannski myndi maður koma heim og vera bara, hey, þetta er bara létt, ég þarf bara að spila aðeins betur. En í staðinn er ég að horfa núna á þetta og veit hvað ég þarf að gera betur.
Opna bandaríska Golf Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira