Innherji

Hundrað milljarða ferðaþjónusturisi verður til sam­hliða skráningu á markað

Hörður Ægisson skrifar
Grímur Sæmundsen, stofnandi Bláa lónsins og núna stjórnarformaður eftir hafa fyrir skemmstu hætt sem forstjóri, er í dag langsamlega stærsti hluthafinn með fjórðungshlut í gegnum félagið sitt Kólfur.
Grímur Sæmundsen, stofnandi Bláa lónsins og núna stjórnarformaður eftir hafa fyrir skemmstu hætt sem forstjóri, er í dag langsamlega stærsti hluthafinn með fjórðungshlut í gegnum félagið sitt Kólfur.

Stjórnendur Bláa lónsins og Arctic Adventures stefna að sameiningu fyrirtækjanna, sem myndi búa til risa í íslenskri ferðaþjónustu með hlutafjárvirði upp á samtals um hundrað milljarða, samhliða áformum um skráningu á markað síðla hausts þar sem ætlunin er að sækja mögulega meira en tíu milljarða. Miðað við fyrirhuguð skiptihlutföll í samrunanum þá munu Stoðir, stór eigandi í báðum félögum, verða annar umsvifamesti hluthafinn með nærri fimmtán prósenta hlut.


Tengdar fréttir

Gætu ráðist í skráningu Bláa lónsins á markað um vorið á næsta ári

Stjórnendur og aðaleigendur Bláa lónsins horfa til þess að næsti mögulegi gluggi til að ráðast í frumútboð og skráningu í Kauphöll sé á vormánuðum ársins 2026 en ferðaþjónustufyrirtækið, sem er að líkindum verðmetið á yfir hundrað milljarða, sér fram á að slá fyrri met þegar kemur að tekjum á þessu ári.

Beinn kostnaður Bláa lónsins vegna jarðhræringa nálgast um átta milljarða

Lokanir og truflanir vegna ítrekaðra jarðhræringa á Reykjanesskaga frá árslokum 2023 hafa valdið beinum kostnaði fyrir Bláa lónið sem nemur samtals um sjö til átta milljörðum króna, einkum vegna tapaðra tekna og greiddra launa á tímum þegar reksturinn hefur stöðvast. Stjórnarformaður Bláa lónsins segir blikur á lofti varðandi þróun ferðaþjónustunnar á heimsvísu, sem muni að líkindum þýða fækkun ferðamanna til Íslands á þessu ári, og gagnrýnir ráðamenn þjóðarinnar fyrir umræðu sem einkennist alltof oft af því hvernig megi skattleggja atvinnuvegina frekar.

Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við

Sigríður Margrét Oddsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Bláa lónsins hf. frá 16. mars næst komandi. Hún hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Grímur Sæmundsen, sem verið hefur forstjóri Bláa lónsins frá stofnun þess 1992 lætur þá af störfum en tekur sæti í stjórn félagsins á næsta aðalfundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×