Vilja að konur uppgötvi sinn æðsta tilgang: að verða mæður Sigurgeir Þorkelsson skrifar 23. júní 2026 22:38 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Mateusz Morawiecki, fyrrverandi forsætisráðherra Póllands fyrir hönd Laga og reglu, og Georgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu fyrir hönd Bræðra Ítalíu. Samsett Miðflokkurinn er orðinn fullgildur meðlimur Samtaka evrópskra íhaldsmanna og umbótasinna (European Conservatives and Reformists Group, eða ECR). Á síðu ECR er fullyrt að kristnir sæti mestum ofsóknum allra trúarhópa og að vegna lækkandi fæðingartíðni fái konur ekki að uppfylla sinn æðsta tilgang: að verða móðir.
Flokkar ECR sem eiga fulltrúa á Evrópuþinginu mynda saman þingflokk og fá fyrir vikið styrki frá ESB. Þingflokkur ECR er sá fjórði stærsti á Evrópuþinginu með 81 af 720 þingmönnum. Tveir stærstu flokkar flokkahópsins á Evrópuþinginu eru Bræður Ítalíu, flokkur Georgiu Meloni forsætisráðherra, og hinn pólski Lög og regla. Kennir ýmissa grasa í útgefnu efni ECR Facebook-síða ECR-þingflokksins er uppfærð í það minnsta daglega. Þegar þetta er skrifað er nýjasta færslan myndband þar sem þingmenn fullyrða að enginn trúarhópur sitji undir sömu ofsóknum og kristnir geri í dag. „Það eru allir að tala um íslamófóbíu eða hinseginfóbíu en við viljum ræða kristnifóbíu (e. Christianophobia),“ segir maður í upphafi myndbandsins. „Það er sorgleg staða að kristnir séu sá trúarhópur sem sætir mestum ofsóknum,“ segir annar. Þingflokkurinn segist hafa farið fram á það við framkvæmdastjórn ESB að stofnað verði embætti sem samhæfir aðgerðir gegn kristnifóbíu í álfunni. Svíþjóðardemókratarnir eru þegar hluti ECR. Getty Í gær birtist síðan myndband þar sem þingmaður gagnrýnir frelsun kvenna sem þykir hafa leitt til lægri fæðingartíðni. Þá hafi Evrópusambandið verið leiðandi í hugarfarsbreytingu um móðurhlutverkið, sem sé nú orðið jaðarsett í Evrópu. Konur fái þannig ekki að uppgötva sinn æðsta tilgang: að verða móðir. Evrópusambandið ætti að vera með „metnaðarfulla stefnu þegar kemur að fæðingum“ samkvæmt þingmanninum. Miðflokkur einnig áhyggjufullur vegna lægri fæðingartíðni Varaformanni Miðflokksins, Snorra Mássyni, hefur verið tíðrætt um lækkandi fæðingartíðni hér á landi. Orðræða Snorra hefur langt því frá verið óumdeild. Viðbrögð hans við gagnrýninni má sjá hér: Þá tók fyrrum þingmaður Miðflokksins, Birgir Þórarinsson, oft til varna fyrir kristna trú á Alþingi og lagði meðal annars fram að kristnifræðikennsla skyldi tekin upp á nýjan leik. Hinn pólski Lög og réttlæti stór innan ECR Forseti framkvæmdastjórnar ECR er Mateusz Morawiecki sem tilheyrir flokki Laga og réttlætis í Póllandi og var forsætisráðherra landsins árin 2017 til 2023. Í tíð flokksins í ríkisstjórn fjarlægðist Pólland ESB, meðal annar vegna breytinga á dómskerfi landsins sem þóttu draga úr sjálfstæði dómstóla og ganga þar með gegn gildum réttarríkisins. Þá vakti stefna flokksins gegn þungunarrofi og réttindum hinsegin fólks litla kátínu hérlendis, sem meðal annars má sjá á mótmælum sem fram fóru. Miðflokkurinn telst samstarfsflokkur á alþjóðavísu þar sem Ísland er ekki aðildarríki ESB. Flokkurinn var í gær boðinn velkominn í samtökin ásamt tveimur öðrum flokkum á Norðurlöndum, Sönnum Finnum og Danmerkurdemókrötum, sem báðir hafa lagt málefni innflytjenda og varðveislu þjóðmenningar á oddinn.ECR Miðflokkurinn dýpkar Evrópusamvinnuna Talsmaður þingflokks ECR í utanríkismálum, Adam Bielan, hefur lýst yfir stuðningi við aðild Íslands að ESB. Það var Ríkisútvarpið sem greindi frá í mars síðastliðnum. Miðflokkurinn fetar með þessu í spor Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks sem þegar hafa bundist böndum með Evrópuflokkum sem fylgja hugmyndafræði þeirra. Viðreisn með frjálslyndum, Samfylking með jafnaðarmönnum og Sjálfstæðisflokkur með Evrópska Þjóðarflokknum (EPP), samstarfi miðhægriflokka. ECR er á móti frekari Evrópusamruna og skrifræði og leggur áherslu á einstaklingsfrelsi og hagsæld þjóðríkja. Í síðustu Evrópuþingskosningum árið 2024 barðist flokkahópurinn hart gegn umhverfisstefnu sambandsins og fyrir sterkari ytri landamærum ESB. Aðildarflokkar ECR teljast margir fjarhægri- eða harðlínuhægriflokkar og hefur orðræða þeirra oft verið skilgreind sem popúlísk. Það var Heimildin sem greindi fyrst frá aðild Miðflokksins að ECR. Heimildin greinir einnig frá því að illa hafi gengið að fá svör frá forsvarsmönnum flokksins um málið allt frá því að fréttir bárust af því að sótt hefði verið um aðild.
Miðflokkurinn Pólland Kosningar á Ítalíu Kosningar í Póllandi Dómstólar Tengdar fréttir Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Ungir miðflokksmenn hafa ekki birt neina stjórnmálaályktun eftir fyrsta landsþing í sögu hreyfingarinnar þótt hátt í tveir mánuðir séu liðnir frá því. Aðrar ungliðahreyfingar hafa birt sínar ályktanir örfáum dögum eftir þeirra landsþing eða jafnvel samdægurs. 12. júní 2026 14:48 Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Fyrrverandi yfirmaður bandarískrar landamæraeftirlitsstofnunar sem leiddi blóðuga rassíu í þarlendum borgum tók þátt í ráðstefnu evrópskra öfgahægrimanna um helgina. Þar ræddu þeir sameiginlegar hugmyndir þeirra um fjöldabrottvísanir á dökkum innflytjendum sem voru þar til fyrir skemmstu bundnar við ystu hægriöfgar. 1. júní 2026 10:07 Mest lesið Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Innlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Sjálfstæðisflokkur á flugi og ríkisstjórnin aldrei mælst með minna fylgi Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Fleiri fréttir Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Rafmagn er farið af í miðbæ Reykjavíkur Vilja að konur uppgötvi sinn æðsta tilgang: að verða mæður Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar Allir umsækjendurnir metnir jafn hæfir Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ „Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Harpa verður fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti nuddara Sjálfstæðisflokkur á flugi og ríkisstjórnin aldrei mælst með minna fylgi Tíðindi í glænýrri Maskínukönnun, Samhjálp og HM í nuddi Opna nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum í Reykjanesbæ Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Myndir úr Hvalfirði: Langreyðar dregnar á land „Planið“ sé byrjað að virka Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ „Úr penna þeirra manna streymir gamalt fullyrðingarusl“ Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Fjöldi tilvika af glæfralegum framúrakstri áhyggjuefni „Dýravernd er ekki öfgaskoðun“ Hvalirnir skornir og lögreglan með áhyggjur af hraðakstri Segir milljarðahönnun skóla í Vogahverfi óraunhæfa Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Hvetja stjórnvöld til að binda enda á „villimannslegar“ hvalveiðar Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Langreyðarnar komnar á land Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Sjá meira
Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Ungir miðflokksmenn hafa ekki birt neina stjórnmálaályktun eftir fyrsta landsþing í sögu hreyfingarinnar þótt hátt í tveir mánuðir séu liðnir frá því. Aðrar ungliðahreyfingar hafa birt sínar ályktanir örfáum dögum eftir þeirra landsþing eða jafnvel samdægurs. 12. júní 2026 14:48
Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Fyrrverandi yfirmaður bandarískrar landamæraeftirlitsstofnunar sem leiddi blóðuga rassíu í þarlendum borgum tók þátt í ráðstefnu evrópskra öfgahægrimanna um helgina. Þar ræddu þeir sameiginlegar hugmyndir þeirra um fjöldabrottvísanir á dökkum innflytjendum sem voru þar til fyrir skemmstu bundnar við ystu hægriöfgar. 1. júní 2026 10:07