Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Sindri Sverrisson skrifar 25. júní 2026 21:46 Höskuldur Gunnlaugsson gaf Arnari Bjarka fimmu fyrir að minnka muninn í 4-1 en það dugði skammt fyrir Blika. vísir/Diego Höskuldur Gunnlaugsson, leikmaður Breiðabliks, var að vonum svekktur eftir 4-1 tap gegn Víkingi á Kópavogsvelli í kvöld. Blikar voru lengi vel inni í leiknum en gestirnir refsuðu grimmilega þegar heimamenn riðluðust í sínum leik. „
Já, það er ágætlega orðað,“ sagði Höskuldur aðspurður um að Blikar hefðu verið lengi inni í leiknum þrátt fyrir að niðurstaðan hefði á endanum verið stórt tap. „Mér fannst við kannski byrja á því að sýna þeim fullmikla virðingu. Það tók okkur smá tíma að komast inn í leikinn af ákefð og ná því upp. En mér fannst við í raun og veru hrista það fljótt af okkur eftir fyrsta markið og vinna okkur flott inn í leikinn.“ Höskuldur taldi Blika hafa fengið færi til að koma sér betur inn í leikinn fyrir hlé. „Við vorum smá klaufar að fara ekki betur með stöðurnar sem við náðum að koma okkur í, bara upp á síðustu sendingu, til að jafna leikinn í fyrri hálfleik.“ Víkingar bættu svo við öðru marki og eftir það varð verkefnið erfitt fyrir Blika. „Það var erfitt að fá þetta 2-0 mark á sig. Þá fórum við kannski aðeins úr strúktúr og þeir þefa það uppi ef lið fara í eitthvað ójafnvægi. Þeir refsa bara vel.“ Liðin mætast aftur strax á sunnudaginn, þá í annarri keppni, og Höskuldur segir Blika þurfa að bregðast hratt við. „Það er bara mjög mikilvægur leikur. Við þurfum í raun og veru bara að taka lærdóm úr þessum leik og hratt. Þetta eru smáatriði á móti sterku Víkingsliði, sérstaklega þegar þeir eru í svona takti.“ Höskuldur segir Víkinga vera með mikið sjálfstraust um þessar mundir. „Mér finnst ekki langt á milli liðanna en þeir eru bara það confident núna að þeir refsa fyrir hver einustu mistök. Við þurfum bara að taka góðan lærdóm hratt úr þessu, skilja samt við leikinn og koma peppaðir á sunnudaginn.“ Eitthvað hefur verið rætt um leiktíma bikarleiksins á sunnudaginn en Höskuldur sagðist ekki hafa sterka skoðun á því. „Nei, engar sérstakar. Ég skil svo sem stuðningsmenn að vilja koma á leikinn og geta tekið allt pakkið með sér. En við leikmenn höfum svo sem ekki sterka skoðun á því.“
Besta deild karla Breiðablik Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fleiri fréttir KA hættir samstarfinu við Þór og kvennalið Þór/KA heyrir sögunni til Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira