„Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Rakel Sveinsdóttir skrifar 27. júní 2026 10:01 Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, fékk góðan vin til að hjálpa sér að svara spurningu um hvaða karakter úr kvikmynd hún væri líkust. Niðurstaðan var Kate Hudson í How to Lose a Guy in 10 Days. Vísir/Vilhelm Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég vakna við útvarpsklukkuna klukkan sjö og er þá yfirleitt komin fljótlega í gang. Með fjórar ungar stúlkur og sprækan hund á heimilinu fyllist dagurinn fljótt af lífi.” Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög! Síðan þarf að ræsa stelpurnar og koma mannskapnum af stað út í daginn. Morgunrútínan er svolítið erfiðari á þessum bjartasta tíma ársins, það er gaman að leika úti á kvöldin og þess vegna er farið seinna í háttinn. Tvo morgna í viku mætum við svo saman í einkaþjálfun, ég og maðurinn minn, sem er svona okkar dekur til að ná smá tíma saman.“ Ef þú værir karakter úr frægri bíómynd, hver værir þú þá? „Erfið spurning en ég fékk góðan vin til að velja fyrir mig, sem sagði Kate Hudson í How to Lose a Guy in 10 Days. Ég get alveg tengt við ýmislegt drepfyndið sem gengur þar á og hvað hún fer stundum „all in“. Mér finnst líka skemmtilegt hvað hún tekur hlutunum með góðum húmor og svo er auðvitað alltaf gaman þegar allt endar vel.“ Elísabet og Terrý á göngu. Elísabet segir dagatalið sitt helsta verkfæri í skipulagi. Þar skrái hún allt sem skiptir máli fyrir vinnuna og einkalífið. Það sem ekki er skráð er í hættu á að komast ekki í framkvæmd.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Það er nóg um að vera hjá mér þessa dagana, bæði í fræðslumálum og ferlavinnu. ECIT-skólinn fyrir starfsmenn er stór hluti af því, ásamt ýmsu öðru spennandi sem snýr að þróun og umbótum innan fyrirtækisins. Við erum líka rúmlega 110 manna hópur og erum afar stolt af þeim öfluga og dýrmæta mannauði sem við höfum, sem gerir starfið bæði skemmtilegt og krefjandi. Fyrir utan vinnuna er ég með persónulega gönguáskorun í gangi þar sem ég set mér markmið um hreyfingu og útiveru. Ég fæ oft hundinn okkar, Terrý, með mér út í náttúruna. Það er bæði góð hreyfing og líka frábær leið til að hlaða batteríin.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? Ég er nokkuð skipulögð – þótt ég geti stundum verið úti um allt! Dagatalið mitt er hins vegar lykilverkfæri, bæði í starfi og einkalífi, og þangað fer allt sem skiptir máli. Ef það kemst ekki í dagatalið er ólíklegt að það komist í framkvæmd.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Fljótlega eftir að börnin fara að sofa tek ég smá „hreinsunarhring“ á heimilinu áður en ég fer sjálf upp í rúm. Yfirleitt er ég sofnuð um ellefuleytið en síðustu vikurnar hefur það þó dregist enda hugurinn önnum kafinn við brúðkaupsundirbúning. Það er reyndar mjög gaman að gleyma sér aðeins í svoleiðis pælingum… og á Pinterest flýgur tíminn ansi hratt.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Brynjólfur Magnússon lögfræðingur og eigandi Kjalar Advisory hugleiðir alla morgna og segir það góða jarðtengingu inn í daginn. Svo huggulegur er hann að auðvelt er að líkja honum saman við sjálfan James Bond. Enda alltaf vel til fara. 20. júní 2026 10:02 Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára. 13. júní 2026 10:00 Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna. 6. júní 2026 10:00 „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Rebekku Jóelsdóttur, fjármálastjóra Mílu, finnst hún vera hrikalega handlagin heima fyrir. Hennar nánustu eru ekki endilega sama sinnis. Þegar daginn fer að lengja riðlast svefntíminn á kvöldin. 30. maí 2026 10:00 Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, er einn þeirra sem er oftast vaknaður á undan klukkunni en segist þó hafa breyst frá því að vera algjör B-maður yfir í að vera blanda af A og B. Þessi dægrin er Ingvar að lesa bók um ömmu sína fyrir svefninn. 23. maí 2026 10:02 Mest lesið „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Uppsagnir fram undan og óttinn vex Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Sjá meira
Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Brynjólfur Magnússon lögfræðingur og eigandi Kjalar Advisory hugleiðir alla morgna og segir það góða jarðtengingu inn í daginn. Svo huggulegur er hann að auðvelt er að líkja honum saman við sjálfan James Bond. Enda alltaf vel til fara. 20. júní 2026 10:02
Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára. 13. júní 2026 10:00
Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna. 6. júní 2026 10:00
„Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Rebekku Jóelsdóttur, fjármálastjóra Mílu, finnst hún vera hrikalega handlagin heima fyrir. Hennar nánustu eru ekki endilega sama sinnis. Þegar daginn fer að lengja riðlast svefntíminn á kvöldin. 30. maí 2026 10:00
Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, er einn þeirra sem er oftast vaknaður á undan klukkunni en segist þó hafa breyst frá því að vera algjör B-maður yfir í að vera blanda af A og B. Þessi dægrin er Ingvar að lesa bók um ömmu sína fyrir svefninn. 23. maí 2026 10:02