Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 29. júní 2026 12:12 Heiður Vigfúsdóttir stóð úti á stuttermabol og í stuttbuxum á Egilsstöðum þegar fréttamaður náði tali af henni í morgun. vísir/vilhelm Rigningu er spáð alla vikuna á Suðvesturhorni landsins. Bærilegasta veðrið er fyrir austan og þangað er fólk þegar byrjað að flykkjast. Framkvæmdastjóri tjaldsvæðisins á Egilsstöðum segir erlenda ferðamenn flýja hitabylgjuna í Evrópu.
Ef litið er á veðurkort Veðurstofunnar má sjá að rigningu er spáð alla vikuna á suðvesturhorni landsins og fá allir landshlutar sinn skerf af vætu næstu daga. Bærilegasta veðrið er á Austurlandi eins og svo oft áður á þessum tíma árs þó að spár geri ráð fyrir úrkomu þar eins og annars staðar. Heiður Vigfúsdóttir framkvæmdastjóri tjaldsvæðisins á Egilsstöðum segir fólk þegar byrjað að flykkjast Austur. „Við hérna fyrir austan og sérstaklega á Héraðinu erum á einhverju rosalega vel heppnuðu veðursvæði þannig við fáum rosalega oft yndislegt veður þegar aðrir eru ekki að fá slíkt hið sama og þá kannski eðlilega flykkist fólk til okkar og vill fá að njóta og fá sinn skammt af D vítamíninu sem er í boði.“ Þegar þessi frétt er í undirbúningi á Suðurlandsbraut í Reykjavík er fremur grátt og blautt úti. Heiður er í aðeins öðrum málum og lýsir veðrinu sem yndislegu. „Ég stend hérna úti á stuttermabol og stuttbuxum. Það voru nokkrir dropar í morgun en ég held að það hafi bara verið gert fyrir gróðurinn. Það var bar í nokkrar mínútur og nú skín sólin skært og gott hitastig, eins og við viljum hafa sumrin.“ Erlendir ferðamenn á flótta Heiður segir fjölda erlendra ferðamanna sækja tjaldsvæðið og að margir komi hingað til lands til að flýja hitabylgju í Evrópu. „Ég held að þeir séu alveg til í að fara líka á Suðvesturhornið þó að það rigni þar. Ég held að þeir séu mjög glaðir að geta kælt sig aðeins niður.“
Veður Tjaldsvæði Ferðalög Ferðaþjónusta Reykjavík Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira