Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar 1. júlí 2026 07:33 Nýlega skrifaði ég grein þar sem ég varpaði fram eftirfarandi spurningu: Hver á að framleiða matinn okkar eftir 20 ár? Sú spurning er mikilvæg sem fyrr. Hún snýst um nýliðun, kynslóðaskipti, þekkingu og það hvort fólk sjái framtíð í íslenskri matvælaframleiðslu. En önnur spurning er ekki síður mikilvæg: Hvað eigum við að framleiða? Þar blasir við vannýtt tækifæri. Ísland getur ræktað meira af sínu eigin grænmeti og matvælum almennt. Ekki allt vissulega en miklu meira en í dag er gert. Matur, heilsa og velferð Grænmetisframleiðsla snýst ekki aðeins um hvort framleiddir séu fleiri tómatar eða agúrkur í landbúnaði. Slík framleiðsla felur í sér spurningu um orku og orkukostnað, nýsköpun og hvata til þróunar nýrra lausna, lýðheilsu, velferð og matvælaöryggi. Í ylrækt mætast t.d. jarðhiti, raforka, vatn, tækni, þekking og frumkvöðlakraftur. En e.t.v. þurfum við nýja hugsun. Matvælaframleiðsla á ekki aðeins að snúast um magn, tonn, stuðning eða tollvernd. Hún á líka að styðja við heilbrigðara samfélag og almenna velferð. Ef við viljum að fólk borði meira af ferskum, hollum og næringarríkum mat þarf slíkur matur að vera aðgengilegur og framleiddur við góðar aðstæður í okkar nærumhverfi. Velferð snýst líka um það sem á endanum er á disknum okkar. Frá grænmeti til framtíðarmatvæla Við þurfum þó hugsanlega að víkka umræðuna. Aukin framleiðsla snýst ekki aðeins um tómata, gúrkur og salat, þótt sú framleiðsla skipti miklu máli. Þetta snýst líka um fersk, græn og heilsubætandi matvæli í víðari skilningi. Danir hafa nálgast málið þannig. Þar er ekki aðeins horft til hefðbundins grænmetis, heldur einnig til plöntutengdra matvæla, próteinríkrar ræktunar, bauna, erta, hafra, sveppa, vöruþróunar og að mörgu leyti nýrrar matarmenningar. Hugsunin er ekki að þrengja að hefðbundnum landbúnaði, heldur að opna nýja möguleika. Ísland ætti að spyrja sömu spurninga á eigin forsendum. Getum við ræktað meira af sveppum og tengdum afurðum innanhúss með hreinni orku? Getum við þróað nýjar íslenskar vörur úr höfrum, byggi, baunum, þörungum, grænmeti eða öðrum hráefnum? Ný hugsun Noregur hefur sett fæðuöryggi skýrar inn í sína landbúnaðarstefnu og horfir til þess að auka innlenda framleiðslu og styrkja framleiðslu jurtaafurða. Í Danmörku er hugsunin einnig stærri en hefðbundinn landbúnaðarstuðningur. Hún snýst um að tengja matvælaframleiðslu við heilsu og velferð, loftslagsmál, orku og nýsköpun. Við eigum að gera slíkt hið sama á íslenskan hátt. Ísland hefur þegar samþykkt landbúnaðarstefnu til ársins 2040. Þar er fjallað um framleiðslu heilnæmra landbúnaðarafurða, fæðuöryggi, nýsköpun og tækni, fjölbreyttari garðyrkju og aðra ræktun afurða til manneldis. Það eru góð markmið. En nú þarf næsta skref. Ef við ætlum í raun að efla íslenska matvælaframleiðslu þurfum við nýja hvata, mælanleg markmið, skýrari forgangsröðun og raunverulegt átak. Við þurfum að vita hvað við ætlum að rækta meira af, hvaða nýju vörur við ætlum að þróa, hvaða orkuinnviði þarf og hvernig árangurinn verður mældur. Íslenskt átak í grænni matvælaframleiðslu Sérstaða Íslands liggur ekki í því að við getum framleitt allt sjálf. Það getum við ekki. En við búum yfir hreinni orku, jarðhita, góðu vatni, þekkingu, traustri ímynd og möguleikum til að framleiða fersk matvæli nær neytendum en gengur og gerist. Þess vegna þurfum við íslenskt átak í grænni matvælaframleiðslu og hugsanlega nýtt hvatakerfi. Slík áætlun ætti að setja skýr markmið um aukna hlutdeild íslensks grænmetis og heilnæmra matvæla, styðja fjárfestingu í ylrækt og orkunýtinni tækni, efla rannsóknir og menntun, einfalda regluverk og tengja íslenska framleiðslu betur við opinber innkaup, skóla, leikskóla, hjúkrunarheimili og heilbrigðisstofnanir. Matvælaframleiðsla tengist líka umræðunni um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Sú umræða má ekki aðeins snúast um markaði, tolla og reglur. Hún verður líka að snúast um raunverulega framleiðslugetu Íslands og sérstöðu landsins okkar, sem er óneitanlega mikil og sem við verðum að vernda. Þess vegna eigum við ekki aðeins að spyrja hvað Ísland geti framleitt í dag. Við eigum að spyrja hvað Ísland geti framleitt betur og meira á næstu árum. Svarið blasir við. Við eigum að rækta meira af íslensku grænmeti og þróa fleiri heilnæm íslensk framtíðarmatvæli sem stuðla að almennri velferð og velmegun. Höfundur er alþingismaður og bóndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórarinn Ingi Pétursson Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Barnið vex en Fésbókin ekki Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru brotalamir menntakerfisins fyrst að koma upp núna? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að segja „JÁ“ snýst um sanngirni og framþróun Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun