Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Birgir Olgeirsson skrifa 30. júní 2026 22:21 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Vísir/Bjarni Dómsmálaráðherra segir Landhelgisgæsluna vera búna að undirbúa viðbrögð við mismunandi sviðsmyndum vegna veru skipsins Bandero í lögsögu Íslands. Ógn felist í hótunum skipverjanna.
Hópur fólks er um borð í skipinu Bandero til að fylgja eftir Aðgerð 86 sem Paul Watson-samtökin skipulögðu. Markmið þeirra er að stöðva hvalveiðar á Íslandi og sigldu þau inn í íslenska lögsögu á laugardag. Síðan þá hefur Landhelgisgæslan fylgst með skipinu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, gagnrýndi aðgerðarleysi Landhelgisgæslunnar en áréttaði Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, að þar sem skipið væri ekki innan landhelgi Íslands hefði gæslan ekki heimild til að vísa þeim frá. Hins vegar fari skipverjar að ógna öðrum innan lögsögunnar hafi Landhelgisgæslan heimild til að bregðast við. Skipverjarnir hafa þegar sagst ætla að gera allt sem þeir geta til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan þau eru nálægt ströndum Íslands. Þá sagði Rod Corodano leiðangursstjóri að allir um borð væru tilbúnir að dvelja í fangaklefa. „Auðvitað er það þannig að það er frjáls för skipa. En við höfum síðan skoðun á því og það eru reglur um það hvernig skip eiga að haga sér. Þarna liggja auðvitað fyrir alvarlegar yfirlýsingar um það hvað mönnum gengur til í þessum efnum og íslensk stjórnvöld munu auðvitað aldrei láta það líðast að menn komist upp með það að ógna velferð eða lífi íslenskra sjómanna,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. „Þetta mál snýst í mínum huga ekki um hvalveiðar eða afstöðu til þeirra, skoðanir um það eru auðvitað skiptar á Íslandi. Kjarnaatriðið hér er öryggi manna sem eru við störf í löglegri atvinnugrein og búa núna við hótanir erlendra aðila um að ætla, eins og þeir hafa orðað það, að grípa til allra mögulegra aðgerða til að stöðva hvalveiðar. Í því felst ógn.“ Geti komið til þess að einhver verði handtekinn Landhelgisgæslan hafi teiknað upp ákveðnar sviðsmyndir og undirbúið viðbragð sem fer eftir því hvar skipið er statt og alvarleikastigi. „Auðvitað eru stofnanir alltaf að horfa til þess hvert er meðalhorfið í svona aðstæðum,“ segir Þorbjörg. Hún segist ekki getað útskýrt áætlunina nákvæmlega en fullyrðir að það muni aldrei líðast að menn komist upp með það að ætla að ógna velferð eða lífi íslenskra sjómanna við löglega atvinnu. Staðan muni breytast ef skipið siglir inn fyrir landhelgi Íslands. „Þar eru heimildir okkar ríkari en stóra markmiðið er auðvitað alltaf hið sama. Við verjum öryggi, velferð og líf manna sem þarna eru á hafi úti og það á í sjálfu sér líka við um þessa erlendu áhöfn. Það er stóra markmiðið.“ Verði atvikið svo alvarlegt koma handtökur til greina og hefur gæslan heimild til að leiða skipið til hafnar eftir því sem þörf þykir á. „Þegar alvarleikastigið er orðið það að það er verið að láta að því liggja eða segja það jafnvel með berum orðum að það eigi að stöðva þessar veiðar með öllum tiltækum ráðum, þá grípum við til aðgerða.“ Ekki verið að bera saman sambærilega hluti Þorbjörg vísar í Landhelgisgæsluna og ríkislögreglustjóra aðspurð hvort mögulega séu einhverjir tengdir samtökunum hér á landi en ekki um borð í skipinu. Í fréttatilkynningu sem Paul Watson-samtökin sendu á fréttastofu í kvöld fylgir með mynd sem meðlimur samtakanna tók í dag. Myndin er tekin í Hvalfirði og virðist sá sem tók myndina vera á þurru landi. Við höfum dæmi um það að lögreglustjóri hefur hér áður vísað glæpasamtökum úr landi, Bandidos. Hvernig er öðruvísi farið með þessi samtök? „Í þeim tilvikum þegar svo var þá hefur það byggt á því að Europol hefur skilgreint viðkomandi samtök sem skipulögð brotasamtök. Það hefur þá áhrif á viðbragðið. Þannig að þegar við erum í svona samanburði þá verðum við að horfa til þess að bera saman rétta og sambærilega hluti og það er ekki alveg svo í þessu tilviki,“ segir Þorbjörg. Áðurnefndur Rod var þá annar þeirra sem komu hingað til lands árið 1986 og sökktu hvalveiðiskipunum Hval 6 og 7. Þorbjörg segir að hennar persónulega skoðun sé sú að taka ætti tillit til fyrri gjörðir áhafnarmeðlima við gerð á áhættumatinu. „Mér finnst sjálfri að það eigi að koma til skoðunar þegar verið er að meta það hversu líklegir menn eru til að efna þessar hótanir sínar að við lítum þá á hver sagan er.“
Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalir Landhelgisgæslan Hvalveiðar Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Sjá meira