Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Jakob Bjarnar skrifar 1. júlí 2026 09:58 Vilhjálmur Birgisson bregst ókvæða við orðum Hönnu Katrínar þess efnis að starfsfólk Hvals eigi að haga sér eins og fullorðið fólk. vísir/Anton Brink/Sigurjón Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforkólfur á Skaga, er afar ósáttur við ummæli Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra og hann segir að hún eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það.
Tilefni orða Vilhjálms eru afdráttarlaus orð Hönnu Katrínar sem sögðu að starfsmenn Hvals ættu að haga sér eins og menn. Þetta var í kjölfar fréttar Vísis sem greindi frá heldur dólgslegum tilburðum starfsmanna sem fólust í því að veifa hvalsbelli að kvikmyndatökumönnum Sýnar um leið og hvalshræ var dregið upp til verkunar í hvalstöðina í Hvalfirði. Eftir að Vilhjálmur hafði látið hin digurbarkalegu ummæli falla dregur hann eilítið í land í kröftugri Facebook-færslu: „Ég ætla ekki að bera blak af hegðun einstakra starfsmanna Hvals. Þvert á móti tel ég að okkur beri ávallt að sýna dýrum virðingu og undir engum kringumstæðum að gefa andstæðingum hvalveiða færi á að kasta rýrð á heila atvinnugrein vegna hegðunar fárra einstaklinga,” segir Vilhjálmur. Hvar er Hanna þegar ofsóknir Pauls Watson eru annars vegar? En hann bætir svo við að það veki furðu hans að atvinnuvegaráðherra vilji grípa þetta tækifæri til að koma andstöðu sinni við hvalveiðar á framfæri en láti hins vegar algerlega hjá líða að fordæma þá skipulögðu atlögu sem starfsmenn Hvals hafa mátt þola af hálfu erlendra öfgaaðgerðasinna. Vilhjámur telur að Hanna Katrín sem atvinnuvegaráðherra eigi að standa með fólki sem stundar vinnu sem er stjórnarskrárvarin.vísir/sigurjón „Hvers vegna heyrum við ráðherrann ekki skora á Paul Watson og félaga hans að hætta hótunum, áreitni og ofsóknum gegn starfsfólki Hvals? Hvers vegna heyrum við ekki ráðherrann fordæma mann sem hefur sjálfur viðurkennt að hafa sökkt tveimur hvalveiðiskipum og valdið stórfelldu eignatjóni í nafni eigin baráttu? Hvers vegna er ekki minnst á að markmið þessara aðgerðasinna er að koma í veg fyrir að íslenskt fólk geti stundað löglega atvinnu og þar með stefna atvinnuöryggi hundraða fjölskyldna í hættu?“ Stjórnarskrárvarinn réttur fólks að velja sér atvinnu Vilhjálmur segir miklu auðveldara að gagnrýna starfsmenn Hvals þegar einstök tilvik komi upp. „En það er miklu erfiðara að standa með því fólki sem dag eftir dag mætir hótunum og stöðugu áreiti fyrir það eitt að vinna löglegt starf samkvæmt íslenskum lögum og leyfum stjórnvalda.“ Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra tókst að strjúka Vilhjálmi öfugt á Vísi í gær.vísir/anton brink Vilhjálmur hefur verið einarður talsmaður þess að Hvalur fái að veiða og verka hval og segir skipulagða herferð rekna með það yfirlýsta markmið að stöðva löglega atvinnustarfsemi; „Knýja fyrirtæki til að hætta rekstri og svipta fólk atvinnu sinni.“ Ekki einungis sé vegið að fyrirtækinu heldur einnig þeim stjórnarskrárvarða rétti fólks til að velja sér atvinnu og lifa af heiðarlegri vinnu.
Akranes Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalfjarðarsveit Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira