Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Freyja Þórisdóttir skrifar 2. júlí 2026 11:21 Þegar drengurinn vaknaði sat leðurblakan á neðri hluta andlits hans, yfir munninum á honum. Getty Ellefu ára kanadískur drengur lést úr hundaæði eftir að hafa vaknað við að leðurblaka var sest á andlit hans en atvikið átti sér stað árið 2024. Foreldrar drengsins leituðu með hann til læknis um tveimur vikum seinna þegar hann fór að finna fyrir doða og bólgu í andliti. Illa gekk að greina einkenni hans og á tímabili var gert ráð fyrir að hann væri með svokallaða Bell-lömun og seinna herpes-munn- og gómsýkingu. Þegar hann var loks greindur með hundaæði átti hann rétt rúmar tvær vikur ólifaðar.
Hann var í heimsókn í sumarbústað í Ontario-fylki í Kanada ásamt fjölskyldu sinni, samkvæmt skýrslu í tímaritinu Canadian Medical Association Journal sem birt var á mánudag, er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Gekk illa að greina drenginn Drengurinn, sem ekki var nafngreindur í skýrslunni, sló leðurblökuna af andliti sínu og í kjölfarið fangaði faðir hans blökuna í potti og sleppti henni út. Foreldrar drengsins leituðu ekki læknishjálpar strax þar sem sonur þeirra var ekki með neina sýnilega áverka og þeim fannst leðurblakan ekki haga sér undarlega, að því er fram kemur í tímaritinu. Nítján dögum síðar fór drengurinn að finna fyrir dofa og bólgu í andliti en í tímaritinu var greint frá því hvernig fjölskylda hans fór með hann á bráðamóttöku næstu daga og hvernig bæði læknastofur og sjúkrahúslæknar reyndu að greina einkenni hans. Hundaæði er sjaldgæfur en alvarlegur veirusjúkdómur sem berst í fólk með biti eða klóri sýktra spendýra. Sjúkdóminn er ekki að finna á Íslandi.Getty Í fyrstu ávísaði bráðamóttaka drengnum veirulyfjum sem notuð eru til að meðhöndla sýkingar af völdum herpesveira, þar sem gert var ráð fyrir að hann gæti verið með Bell-lömun, sem er tímabundin lömun á andlitsvöðvum öðrum megin í andliti. Síðan fór hann á sjúkrahús í tvær heimsóknir í röð, fyrst með líklega greiningu á herpes-munn- og gómsýkingu en sneri svo aftur daginn eftir þegar hann varð máttlaus í hluta andlitsins. Á næstu dögum fékk hann 39 stiga hita, ásamt því að finna fyrir erfiðleikum við að kyngja, ruglingi og sjónofskynjunum. Ástand hans versnaði hratt daginn sem hann beið eftir innlögn á sjúkrahúsin og var hann settur í öndunarvél og lagður inn á gjörgæsludeild barna, segir í tímaritinu. Nánast alltaf banvæn Læknar við barnalækninga- og heilbrigðisdeild Háskólans í Manitoba í Kanada sögðu að þeir hefðu sterkan grun um hundaæði, er segir í skýrslunni í tímaritinu. Dögum síðar staðfesti próf að svo væri. Kanadíska matvælaeftirlitið greindi einnig afbrigði af hundaæðisveiru úr leðurblöku. Drengurinn lést sautján dögum eftir að hann var lagður inn á sjúkrahús. Hundaæðissýkingar eru sjaldgæfar í Kanada. Alls hafa tuttugu og átta dauðsföll af völdum hundaæðis orðið í landinu frá árinu 1924, samkvæmt því sem BBC hefur eftir kanadíska dýralæknasambandinu. „Þessi lága tíðni hundaæðis er vegna útbreiddra, viðvarandi bólusetningaráætlana og ef þessum áætlunum er ekki haldið áfram getur það leitt til þess að sjúkdómurinn komi aftur,“ segir á vefsíðu samtakanna. Sýkingin er nánast alltaf banvæn þegar einkenni koma fram, segir í skýrslunni.
Hundar Kanada Bólusetningar Dýr Dýraheilbrigði Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira