Fannst látinn í tjaldi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 5. júlí 2026 10:01 Hinn látni dvaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum. Karlmaður var úrskurðaður látinn eftir að íslensk hjón fundust meðvitundarlaus á tjaldsvæði á Suðurlandi í gær. Andlátið er rannsakað sem gaseitrun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi á Facebook. Magnús Ragnarsson aðalvarðstjóri staðfestir í samtali við fréttastofu að hjónin séu íslensk. Lögreglunni barst tilkynning um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum um hádegisbil í gær. Nánari staðsetning fékk ekki uppgefin hjá lögreglu að svo stöddu. Lögregla og sjúkralið voru þegar send á vettvang. „Það kemur tilkynning til Neyðarlínu og svo til okkar um tvo aðila sem eru meðvitundarlausir í tjaldi á tjaldsvæði. Það er allt viðbragð sent á staðinn og þar hefjast endurlífgunartilraunir. Þær bera ekki árangur hjá karlmanni á áttræðisaldri en konan á sjötugsaldri er flutt á gjörgæslu þungt haldin,“ segir Magnús. Tilkynning lögreglunnar á Suðurlandi: Um hádegisbil í gær barst lögreglu tilkynning um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum. Lögregla og sjúkralið voru þegar send á vettvang. Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir var karlmaður á áttræðisaldri úrskurðaður látinn á vettvangi. Kona á sjötugsaldri var flutt á gjörgæsludeild þungt haldin. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins. Málið er rannsakað sem slys og er meðal annars til skoðunar hvort um gaseitrun hafi verið að ræða Lögreglan hefur ekki nánari upplýsingar um líðan konunnar. Kunningjafólk veitti fyrstu aðstoð Málið er rannsakað sem slys og er meðal annars til skoðunar hvort um gaseitrun hafi verið að ræða. Gashitari hafi verið inni í tjaldinu. „Ef gas brennur ekki við nægilegt súrefni getur myndast eiturgas,“ segir Magnús og ítrekar mikilvægi þess að hafa nægt loftflæði þegar kveikt er á slíkum hitara. „Tæknideild kemur svo til aðstoðar hjá lögreglu og fer rannsóknardeildin á Suðurlandi með málið.“ Kunningjafólk hjónanna hafi komið að þeim meðvitundarlausum, tilkynnt málið og veitt fyrstu aðstoð á vettvangi. Heilbrigðisstofnun Suðurlands sendi fulltrúa sína á svæðið og veittu þau áfallahjálp. „Þetta er hörmulegur atburður og erfiður vettvangur að vinna á í svona aðstæðum þar sem bæði er fólk sem maður þekkir til og mikið af fólki á svæðinu, mikil ferðahelgi. Auðvitað slær þetta á alla.“ Fréttin var uppfærð eftir viðtal við aðalvarðstjóra lögreglunnar. Lögreglumál Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi á Facebook. Magnús Ragnarsson aðalvarðstjóri staðfestir í samtali við fréttastofu að hjónin séu íslensk. Lögreglunni barst tilkynning um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum um hádegisbil í gær. Nánari staðsetning fékk ekki uppgefin hjá lögreglu að svo stöddu. Lögregla og sjúkralið voru þegar send á vettvang. „Það kemur tilkynning til Neyðarlínu og svo til okkar um tvo aðila sem eru meðvitundarlausir í tjaldi á tjaldsvæði. Það er allt viðbragð sent á staðinn og þar hefjast endurlífgunartilraunir. Þær bera ekki árangur hjá karlmanni á áttræðisaldri en konan á sjötugsaldri er flutt á gjörgæslu þungt haldin,“ segir Magnús. Tilkynning lögreglunnar á Suðurlandi: Um hádegisbil í gær barst lögreglu tilkynning um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum. Lögregla og sjúkralið voru þegar send á vettvang. Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir var karlmaður á áttræðisaldri úrskurðaður látinn á vettvangi. Kona á sjötugsaldri var flutt á gjörgæsludeild þungt haldin. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins. Málið er rannsakað sem slys og er meðal annars til skoðunar hvort um gaseitrun hafi verið að ræða Lögreglan hefur ekki nánari upplýsingar um líðan konunnar. Kunningjafólk veitti fyrstu aðstoð Málið er rannsakað sem slys og er meðal annars til skoðunar hvort um gaseitrun hafi verið að ræða. Gashitari hafi verið inni í tjaldinu. „Ef gas brennur ekki við nægilegt súrefni getur myndast eiturgas,“ segir Magnús og ítrekar mikilvægi þess að hafa nægt loftflæði þegar kveikt er á slíkum hitara. „Tæknideild kemur svo til aðstoðar hjá lögreglu og fer rannsóknardeildin á Suðurlandi með málið.“ Kunningjafólk hjónanna hafi komið að þeim meðvitundarlausum, tilkynnt málið og veitt fyrstu aðstoð á vettvangi. Heilbrigðisstofnun Suðurlands sendi fulltrúa sína á svæðið og veittu þau áfallahjálp. „Þetta er hörmulegur atburður og erfiður vettvangur að vinna á í svona aðstæðum þar sem bæði er fólk sem maður þekkir til og mikið af fólki á svæðinu, mikil ferðahelgi. Auðvitað slær þetta á alla.“ Fréttin var uppfærð eftir viðtal við aðalvarðstjóra lögreglunnar.
Tilkynning lögreglunnar á Suðurlandi: Um hádegisbil í gær barst lögreglu tilkynning um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum. Lögregla og sjúkralið voru þegar send á vettvang. Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir var karlmaður á áttræðisaldri úrskurðaður látinn á vettvangi. Kona á sjötugsaldri var flutt á gjörgæsludeild þungt haldin. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins. Málið er rannsakað sem slys og er meðal annars til skoðunar hvort um gaseitrun hafi verið að ræða
Lögreglumál Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira