Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sigurgeir Þorkelsson skrifar 5. júlí 2026 15:36 Guðný Sverrisdóttir var sigurvegari keppninnar í ár. BLIK Studio / Daníel Þór Árlega hlýtur einn landsmanna titilinn rauðhærðasti Íslendingurinn en sigurvegarinn í ár er Guðný Sverrisdóttir frá Hólmavík. Bæjarhátíðin Írskir dagar fór fram á Akranesi í vikunni og hefur val á rauðhærðasta Íslendingnum öðlast sinn sess sem fastur dagskrárliður.
Tuttugu og tveir keppendur voru skráðir til leiks í ár. Rautt hár hefur einkum verið kennt við Írland og hefur því þótt viðeigandi að keppnin eigi sér stað á bæjarhátíðinni á Akranesi. Í dómnefnd sátu Ísabella Rós, sigurvegari síðasta árs, og móðir hennar, Andrea Ýr Arnarsdóttir, fyrrverandi oddviti Hvalfjarðarsveitar, en mæðgurnar státa báðar af glæsilegum, rauðum hármakka. Hátíðin náði hápunkti í gær í rjómablíðu þegar hátt í tíu þúsund gestir fylltu brekkuna við íþróttavöllinn í árlegum brekkusöng sem þeir Hreimur Örn Heimisson og Magni Ásgeirsson stýrðu. Hátíðargestir skemmtu sér vel. BLIK Studio / Daníel Þór Tónlistarhátíðin Lopapeysan tók við í beinu framhaldi af brekkusöngnum, en þar skemmtu um 5 þúsund gestir sér við undirleik margra af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar. Að sögn skipuleggjenda fór hátíðin afar vel fram. „Ég er í skýjunum með þessa hátíð og hvað allt gekk vel,“ er haft eftir Hjörvari Gunnarssyni skipuleggjanda í tilkynningu. Hátíðin í ár er sú tuttugasta og sjöunda í röðinni. Líkt og fyrri ár hlýtur sigurvegarinn gjafabréf frá Icelandair að launum.
Akranes Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Sjá meira