Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Freyja Þórisdóttir skrifar 6. júlí 2026 14:39 Hjúkrunarheimilið Eir í Grafarvogi, maí 2020. Vísir/Vilhelm Rannsókn stendur enn yfir eftir að öldruð kona féll fram af svölum á Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi sunnudaginn 28. júní með þeim afleiðingum að hún lést. Andlátið hefur verið rannsakað sem slys og verður það áfram nema eitthvað óvænt komi í ljós í niðurstöðum krufningar.
Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar, í samtali við fréttastofu Vísis. Hún segir geta tekið allt að hálft ár að safna þeim gögnum sem þarf til að rannsókn sé formlega lokið. „Í raun og veru er það með svona að við þurfum alltaf að bíða eftir krufningu,“ segir hún og bætir við að nema það komi eitthvað fram að lokinni krufningu sem bendir til einhvers annars en slyss þá verði þetta rannsakað áfram sem slíkt. „Ef eitthvað kemur fram sem bendir til einhvers annars en slyss, þá auðvitað breytist þetta,“ segir hún en ítrekar „eins og staðan er hjá okkur í dag, þá er ekkert sem bendir til neins annars og svo bara vinnum við okkur áfram með það“. E. Agnes segir mjög erfitt að geta til um hvenær öll nauðsynleg gögn verði tilbúin og málinu lokað. Það séu dæmi um að það hafi tekið hálft ár að fá endanlega niðurstöðu úr krufningu. Fyrst um sinn séu fáanlegar bráðabirgðaniðurstöður en bíða þurfi eftir lokagögnum til að rannsókn sé alveg lokið. Eir hjúkrunarheimili stendur við Hlíðarhús í Grafarvogi. Forstjóri þess er Eybjörg Hauksdóttir. Hún sagði í viðtali á Vísi þann 1. júlí frá því að lögregla og viðbragðsaðilar hafi verið strax kölluð til. Farið verði yfir verkferla og metið hvort hægt hefði verið að grípa til frekari öryggisráðstafana. Eybjörg sagðist hvorki sjálf né annað starfsfólk Eirar muna eftir sambærilegu slysi á hjúkrunarheimilinu.
Lögreglumál Hjúkrunarheimili Reykjavík Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira