Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Agnar Már Másson skrifar 6. júlí 2026 21:30 Lögregla segir að vændismansal sé umfangsmikið hér á landi. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm vændiskaupendur í júní í tengslum við alþjóðlegar lögregluaðgerðir gegn vændismansali. Málið tengist að hluta kínversku glæpaneti og lögregla segir að kínverskar vændiskonur séu gerðar út hér á landi fyrir um tuttugu þúsund krónur á hálftímann.
Dagana 8. til 12. júní réðst lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samhentar aðgerðir í samvinnu við alþjóðleg lögregluyfirvöld sem beindust gegn mansali og vændiskaupum. Við aðgerðir lögreglu á Íslandi náðust myndskeið af 50 vændiskaupendum og þá voru fimm handteknir. Þá voru borin kennsl á sextán mögulega þolendur vændis og þeim boðin aðstoð. Tveimur var vísað úr landi vegna ólöglegrar dvalar á Íslandi. Alþjóðlega lögregluaðgerðin ber yfirskriftina Operation GLOBAL CHAIN og var unnin í samvinnu við Frontex, Europol og Interpol. Í heildina voru ríflega þúsund handteknir um víða veröld en á Íslandi viðhafði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu eftirlit við tvo staði þar sem grunur lék á um að vændi væri stundað á gistiheimilum. Auk þess var lagt hald á um 14 þúsund evrur í reiðufé hér á landi, sem nemur rúmlega tveimur milljónum króna, og einnig var lagt hald á þrettán farsíma og ellefu skilríki. Gunnar Axel Davíðsson rannsóknarlögreglumaður leiddi rannsóknina á Íslandi en hann segir að þolendurnir sextán séu af mörgum þjóðernum, flestir konur en einn trans karl. „Kaupendur eru af mörgu þjóðerni, seljendurnir líka. Við hittum vændiskonur frá Nígeríu, Rúmeníu, Venesúela og Kína meðal annars,“ segir Gunnar Axel. Einhverjir af þolendunum eru sagðir tengjast kínversku glæpaneti og Gunnar segir að á síðustu árum hafi lögregla orðið var við aukinn fjölda kínverskra vændiskvenna sem talið er að séu gerðar út hér á landi. „Með tilkomu kínversku vændiskvennanna – við sáum þær fyrst hér 2024 – þá er verðskráin þeirra lægri en annarra vændiskvenna. Ekki mikið, en hálftíminn er um tuttugu þúsund og klukkutíminn í kringum fjörutíu þúsund, eða 35 til fjörutíu þúsund.“ Rannsókn málsins stendur enn yfir en heilt yfir segir Gunnar að vændisstarfsemi sé umfangsmikil hér á landi. „Við teljum það vera nokkuð umfangsmikið hérna miðað við stærðargráðu landsins.“
Mansal Lögreglumál Vændi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira