Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Agnar Már Másson skrifar 7. júlí 2026 23:39 Rétt fyrir flugtak heyrðist hvellur og skyndilega hallaði vélin á aðra hliðina, þannig að vængurinn lá nánast flatur á flugbrautinni. Flugmönnum tókst að stöðva vélina strax. Samsett Mynd Ungum íslenskum ferðalöngum í Kirgistan brá illilega þegar þeir lentu í slysi á flugbraut í höfuðborginni Bishkek. Betur fór en á horfðist, en eftir atvikið segjast strákarnir ekkert sérlega spenntir fyrir því að stíga aftur um borð í flugvél.
Fjórir tvítugir menn frá Íslandi sem voru á ferð um Kirgistan, í Mið-Asíu, ætluðu sér að fljúga frá höfuðborginni Bishkek í morgun, suður til borgarinnar Osh, þar sem þeir ætluðu í fimm daga reiðtúr um fjöllin Pamir-Alaí, sem eru í suðvesturhluta landsins. Þegar þeir voru komnir upp í vél og henni var ekið út flugbrautina á Manas-flugvellinum í Bishkek tók ævintýri þeirra óvænta stefnu; skyndilega heyrðist hvellur og vélin hallaði á hliðina. Ævintýri nokkurra ungra Íslendinga um Kirgistan tók óvæntastefnu þegar eitt af hjólum flugvélarinnar gaf sig.Aðsend Þeir segja að skelfing hafi gripið um farþegana. „Það vissi enginn hvað hafði gerst. Vængurinn lá niðri í jörðinni. Og við vorum bara: Hvað er að gerast? Þá fór fólk að panikka inni í vélinni, börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra,“ segir einn ferðalanganna, Konráð Hólmgeirsson, í samtali við fréttastofu. Útsýnið út um flugvélargluggann.Aðsend Burðarhjólabúnaður (e. main gear) vélarinnar gaf sig, samkvæmt umfjöllun kyrgistanskra miðla. Ferðalangarnir segja að þeir hafi litið út um gluggann og séð að vinstri vængurinn lá nánast kylliflatur á flugbrautinni. Hreyfill vélarinnar hafi sömuleiðis dottið af vængnum. Miðillinn A.K.I. hefur eftir flugvallayfirvöldum í landinu að 181 farþegi hafi verið um borð og að olía hafi lekið úr vélinni, sem er á vegum Tez jet og af gerðinni McDonnel Douglas-83. Reyna samt að komast á bak Engan virðist hafa sakað alvarlega en einhverjir hlutu minniháttar áverka. Strákunum var vitaskuld brugðið en þeir segja að það hafi tekið þá tíma að átta sig á því sem hafði gerst. Vélin var ekki komin á mikla ferð þegar hjólið gaf sig og því gátu flugmennirnir nauðhemlað strax. Farþegar rýmdu vélina og viðbragðsaðilar mættu á svæðið. Þetta hefur ekki verið notaleg upplifun fyrir þá rúmlega 180 farþegar sem voru um borð í vélinu, og ekki síður fyrir starfsfólkið.Aðsend „Slökkviliðið, herinn og allur pakkinn [var] mættur,“ bætir Hákon Hilmir Arnarsson við. Öllum flugferðum um völlinn var aflýst í dag vegna óhappsins en strákarnir vonast enn til að geta náð hestaferðinni. „Við erum að reyna að græja innanlandstaxa, sem tekur tólf tíma [að komast til Osh]. Við erum bara að bíða eftir töskunum núna. Það er svolítil spurning hvort við náum í ferðina,“ bætir svo sá þriðji, Kári Brynjólfsson, við. Strákarnir munu nú þurfa að reiða sig á leigubíl til að komast leiðar sinnar til Osh.grafík/hjalti Mæla gegn innanlandsflugi í Kirgistan Eruð þið ekkert orðnir smeykir [eftir þetta atvik] við það að þurfa að fara aftur í flugvél eftir viku? „Jú, jú, jú, jú,“ svarar Konráð og vinur hans, Logi Hrafn Egilsson, skýtur inn í: „Aðeins smeykari við það núna.“ Og Hákon bætir svo við að lokum: „Allavega innanlandsflug í Kirgistan, við mælum ekki með því.“
Kirgistan Flug Umferðaröryggi Íslendingar erlendis Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira