Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Birgir Olgeirsson skrifar 8. júlí 2026 12:01 Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Vísir/Anton Brink Raforkukostnaður meðalstórs kúabús gæti lækkað um 480 þúsund krónur á ári eftir breytingar sem Alþingi hefur samþykkt á jöfnun dreifikostnaðar raforku.
Breytingarnar tóku gildi 1. júlí og eiga áhrifin að birtast strax á rafmagnsreikningum sem berast heimilum og fyrirtækjum í upphafi næsta mánaðar. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir málið mikilvægt fyrir landbúnaðinn og byggðir landsins. „Þetta er auðvitað mikið fagnaðarefni að þetta frumvarp skyldi vera samþykkt núna með mjög breiðum stuðningi á Alþingi,“ segir Jóhann Páll. Með nýju lögunum eykst jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku milli dreifbýlis og þéttbýlis úr rúmum 60 prósentum í tæplega 90 prósent. Markmiðið er að jafna stöðu heimila og fyrirtækja eftir búsetu og lækka raforkukostnað þar sem dreifikostnaður er hærri. Áhrifin verða mest hjá fyrirtækjum í dreifbýli sem nota mikla raforku, meðal annars í landbúnaði, garðyrkju og fiskvinnslu. Í tilkynningu ráðuneytisins er nefnt að meðalstórt kúabú gæti sparað rúmlega 40 þúsund krónur á mánuði, eða um 480 þúsund krónur á ári. „Þetta er mikilvægt mál fyrir landbúnaðinn. Þetta er mikilvægt mál fyrir byggðafestu í landinu. Þetta er jafnaðarmennska í orkumálum, ef svo má segja,“ segir Jóhann Páll. Heimili í dreifbýli eiga einnig að finna fyrir breytingunum. Samkvæmt ráðuneytinu er áætlað að raforkukostnaður þeirra lækki að meðaltali um rúmlega þúsund krónur á mánuði. Þá getur lækkunin numið rúmum átta þúsund krónum á mánuði fyrir óniðurgreitt rafhitað húsnæði. Breytingarnar ná einnig til heimila sem reiða sig á rafhitun eða kyntar veitur. Raforkunotkun vegna hitunar íbúðarhúsnæðis, sem uppfyllir skilyrði niðurgreiðslna á húshitunarkostnaði, verður undanþegin jöfnunargjaldi. Það þýðir að rafmagnsreikningur þessara heimila lækkar einnig, þó lækkunin verði minni en hjá þeim sem búa við hæstan dreifikostnað. Í lögunum er jafnframt tekin upp þrepaskipting jöfnunargjalds raforku. Notkun undir 1.000 megavattstundum á ári ber hærra gjald en notkun umfram það mark. Með því á að draga úr áhrifum breytinganna á stærri raforkunotendur sem greiða þéttbýlistaxta og koma í veg fyrir að kostnaðaraukning verði óhófleg. Jóhann Páll segir að nú skipti mestu að lækkunin skili sér til þeirra sem eiga að njóta hennar. „Nú þarf auðvitað Orkueftirlitið að fylgjast mjög grannt með því að þessi jöfnun skili sér alla leið, að hún skili sér til notenda,“ segir hann. Ráðherra segir að stjórnvöld muni áfram þróa jöfnunarkerfið þannig að það skili þeim árangri sem stefnt sé að.
Orkumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Neytendur Byggðamál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira