Byggðamál

Fréttamynd

Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segist vera með til skoðunar að breyta fyrirhuguðum breytingum á afsláttarkerfi Loftbrúarinnar og hækka afsláttinn á hvern fluglegg um tvö þúsund krónur. 

Innlent
Fréttamynd

Að­förin gegn lands­byggðinni

Það skaut verulega skökku við þegar við fréttum nú síðsumars að leggja ætti niður leið landsbyggðarstrætós hér í uppsveitum. Í kjölfar mótmæla fékkst í gegn að halda inni tveimur ferðum á dag, að morgni og síðdegis, en þó aðeins á virkum dögum.

Skoðun
Fréttamynd

Sjö þúsund krónur séu ekki nóg

María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir fyrirhugaða breytingu á afsláttarkerfinu Loftbrú ekki duga nóg. Hún hafi miklar áhyggjur af stöðu innanlandsflugsins.

Innlent
Fréttamynd

Loftbrúin er fjár­festing í landsbyggðunum

Ég lít á Loftbrúna sem fjárfestingu í byggðajöfnuði, atvinnuþróun og samkeppnishæfni Íslands, fremur en kostnaðarlið sem rétt sé að skerða. Samgöngur þurfa að styðja við það markmið að fólk geti búið og starfað um allt land.

Skoðun
Fréttamynd

Föst krónu­tala í stað hlut­falls

Ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verður framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi, eða 40 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Ís­landi

Eigandi eina hótelsins í Kulusuk á Grænlandi hefur skellt í lás og ákveðið að hafa lokað í allan vetur. Ástæðuna segir hann vera þá að enginn stuðningur fáist frá landsstjórninni eftir að Icelandair hætti flugi milli Íslands og Kulusuk yfir vetrarmánuði.

Innlent
Fréttamynd

Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á lands­byggðinni

Skattahækkun á baðlón bítur fastast á landsbyggðinni, segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Hún segir Vök við Egilsstaði hafa gjörbylt ferðaþjónustu á Austurlandi og óttast að áform ríkisstjórnarinnar leiði til lokunar baðlónsins hluta úr ári og stöðvi frekari uppbyggingu.

Innlent
Fréttamynd

Norð­austur­land fær loks langþráðan veg

Íbúar Norðausturlands sjá fram á þáttaskil í samgöngumálum með nýjum uppbyggðum vegi yfir Brekknaheiði. Með vegagerðinni þvert yfir Langanes, milli Þórshafnar og Bakkafjarðar, fæst samfellt slitlag um Norðurausturveg sem skapar áhugaverðari valkost í ferðalögum um norðausturhorn landsins.

Innlent
Fréttamynd

Er lands­byggðin hluti af lausninni?

Að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildaviðræður við ESB var sláandi munur á skoðunum landsmanna af höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar.

Skoðun
Fréttamynd

Hyggst kanna hug í­búa til á­forma í Finnafirði

Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur ákveðið kanna hug íbúa til áforma um gerð vindmyllugarða í sveitarfélaginu og iðnaðarsvæðis við Finnafjörð í tengslum við gerð stórskipahafnar. Málið þykir heitt meðal íbúa en oddvitinn segir niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við framhald málsins.

Innlent
Fréttamynd

„Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“

Þórhildur Ólöf Helgadóttir forstjóri Póstsins segir alþjónustu sem Pósturinn á að tryggja á Íslandi kostnaðarsama. Alþingi verði að svara því hversu langt eða stutt fólk eigi að þurfa að fara til að sækja óst. Hún segir það hafa færst verulega í aukana að fólk fái pakka í póstbox. Pósturinn tilkynnti um gjaldskrárhækkanir um síðustu mánaðamót.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þegar ,,ríkið” yfir­gaf byggðina

Þegar ÁTVR lokaði Vínbúðinni á Fáskrúðsfirði yfirgaf ríkið byggðina. Skýringin var einföld: reksturinn bæri sig ekki. Þjónusta sem átti að vera svo lífsnauðsynleg að enginn annar mætti sinna henni var lögð niður um leið og hún hætti að borga sig.

Skoðun
Fréttamynd

Vex Ís­land í eina átt?

Ein helsta skýringin á vexti höfuðborgarsvæðisins er sú að þar hefur stærstur hluti ríkisvalds, stjórnsýslu og opinberrar þjónustu safnast saman. Alþingi, ráðuneytin, stærstu ríkisstofnanirnar og meirihluti opinberra starfa eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu.

Skoðun
Fréttamynd

Á­fall fyrir bæjar­fé­lagið

Sveitarstjóri á Vopnafirði segir nýlegar uppsagnir hjá fiskvinnslu Brims í bænum vera mikið áfall fyrir sveitarfélagið. Framkvæmdastjóri uppsjávarvinnslu hjá Brim segir uppsagnirnar hafa átt sér aðdraganda frá árinu 2018.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er bara al­veg sví­virði­legt“

„Það er allt í uppnámi af því hann [Baldur] er farinn,“ segir Björn Samúelsson, húseigandi í Flatey á Breiðafirði og varamaður í sveitarstjórn Reykhólahrepps. Hann skipulagði í dag þögul mótmæli við „svívirðilegri“ ákvörðun innviðaráðherra, sem ákvað nær fyrirvaralaust að senda Breiðafjarðarferjuna Baldur til Vestmannaeyja, þar sem hún mun leysa Herjólf tímabundið af hólmi.

Innlent
Fréttamynd

„Það er ekki leið­togi“

Oddviti framboðsins Betri sveitar segir Fjólu Kristinsdóttur sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps ekki óháða í umræðu um kosningamál í hreppnum. Hann  tekur undir orð hennar um að siðferðislega rangt sé að skrá sig á kjörskrá fyrir kosningar og aftur út að þeim loknum.

Innlent
Fréttamynd

„Mér finnst það ekki sið­ferðis­lega rétt“

Fjöldi íbúa með ótilgreint heimilisfang hefur margfaldast í Grímsnes- og Grafningshreppi frá síðustu kosningum. Sveitarstjóri segir ekki siðferðislega rétt ef fólk skráir lögheimili sitt í sveitarfélaginu fyrir kosningar og svo til baka að þeim loknum og kallar eftir betri upplýsingagjöf frá Þjóðskrá.

Innlent
Fréttamynd

Endar Fáskrúðs­fjörður sem brot­hætt byggð?

Þegar við hjónin fluttum til Fáskrúðsfjarðar árið 2007 ríkti bjartsýni á Austurlandi. Álverið á Reyðarfirði var að rísa, atvinnulíf í sókn og sameining sveitarfélaga kynnt sem leið til að styrkja svæðið í heild án þess að einstök byggðarlög misstu sérstöðu sína eða þjónustu.

Skoðun
Fréttamynd

„Þetta er bara sann­girnis­mál“

Þó sveitarfélögin á Suðurlandi séu mörg hver stór þá eru þau ekki endilega fjölmenn. Málefnin þar geta þó snert marga og þannig er staðan í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en það er eitt af sveitarfélögunum á svæðinu sem hefur ákvarðanarétt varðandi Hvammsvirkjun. Í sveitastjórn hefur oft á tíðum verið hart tekist á um málið.

Innlent
Fréttamynd

„Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“

Í Grímsnes- og Grafningshreppi eiga tæplega 700 manns löghemili. Þar er einnig stærsta sumarbústaðabyggð landsins en á fjórða þúsund frístundahús eru skráð í sveitarfélaginu. Stærsta kosningamálið í hreppnum tengist einmitt frístundahúsum og þar eru ekki allir sammála.

Innlent
Fréttamynd

Er byggða­stefna á Ís­landi?

Af mörgum ómerkilegum plöggum ríkisvaldsins hljóta byggðaáætlanir og aðgerðaáætlanir þeirra að vera eitt það alla ómerkilegasta. Í landi hvar leitun er að annarri eins bjögun á íbúadreifingu er niðurlægjandi fyrir landsbyggðirnar að litlum 650 milljónum sé varið í byggðamál.

Skoðun