Áfall fyrir bæjarfélagið Agnar Már Másson skrifar 13. júní 2026 15:14 Íris Edda Jónsdóttir sveitarstjóri Vopnafjarðar. Sveitarstjóri á Vopnafirði segir nýlegar uppsagnir hjá fiskvinnslu Brims í bænum vera mikið áfall fyrir sveitarfélagið. Framkvæmdastjóri uppsjávarvinnslu hjá Brim segir uppsagnirnar hafa átt sér aðdraganda frá árinu 2018.
Greint var frá því á Vísi í vikunni að Brim hefði sagt upp tuttugu af sínum sjötíu starfsmönnum í uppsjávarvinnslu á Vopnafirði. Þeim voru í staðinn boðnir lausasamningar til loka nóvember. Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps segir uppsagnirnar áfall fyrir bæjarfélagið, þar sem búa ríflega 650 manns. „Þetta eru mjög erfiðar fréttir og uppsögn af þessari stærðargráðu hefur mjög mikil áhrif á okkur,“ segir Íris Edda Jónsdóttir, sveitarstjóri Vopnafjarðar. Hún segir að sveitarstjórnin hafi óskað eftir fundi með fulltrúum Brims á næstunni vegna málsins. Hjálmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri uppsjávarsviðs Brims, segir að uppsagnirnar hafi átt margra ára aðdraganda. Starfsemi fiskvinnslunnar hafi átt erfitt uppdráttar vegna árstíðarsveifla frá því að félagið hætti bolfisksvinnslu á Vopnafirði 2018. Síðan þá hafi ekki verið nóg af verkefnum fyrir alla sjötíu starfsmenn vinnslunnar. „Þessi lokun bolfiskvinnslunnar gerði það að verkum að vinnsla á fiski á Vopnafirði varð miklu meira árstíðabundin og við vorum oft að sjá svona um jafnvel innan við 18 vinnsluvikur á ári,“ segir Hjálmar. Fiskvinnslan hafi reynt að finna aukaverkefni fyrir alla starfsmenn en það ekki gengið vel. „Þetta er náttúrulega bara leiðinlegt mál og eitthvað sem hefði átt að taka á 2018,“ bætir Hjálmar við.
Vopnafjörður Vinnumarkaður Sjávarútvegur Byggðamál Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Sjá meira