Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum Kristján Már Unnarsson skrifar 9. júlí 2026 21:21 Ása Ólafsdóttir, formaður Gæranna. til hægri. Jónína Sigurðardóttir, ritari Gæranna, til vinstri. Egill Aðalsteinsson Þær kalla sig Gærurnar, konurnar sem reka nytjamarkað á Hvammstanga í sjálfboðavinnu. Ágóðinn fer út í samfélagið til margskyns góðgerðarmála. Og þar fást ótrúlegustu hlutir.
Í kvöldfréttum Sýnar var nytjamarkaðurinn heimsóttur en hann er í hjarta Hvammstanga í byggingu sem eitt sinn var sláturhús. Þær kalla sig Gærurnar sem standa fyrir markaðnum. „Við byrjuðum 2007 í gömlum gærukjallara hjá kaupfélaginu. Og þess vegna heitum við Gærurnar,“ segir Ása Ólafsdóttir, formaður Gæranna. Nytjamarkaður Gæranna er í þessu húsi ofan við höfnina á Hvammstanga.Egill Aðalsteinsson Þær ætluðu í fyrstu að hafa markaðinn bara í eitt skipti einn laugardag. „Síðan eru bara.. - þetta er tuttugasta sumarið og við getum bara ekki hætt,“ segir Ása. „Þetta er þriðji staðurinn sem við erum á. Þetta er stærsti,“ segir Jónína Sigurðardóttir, ritari Gæranna. Um leið er þetta félagsmiðstöð. „Þetta var sláturhús. Þetta er fláningssalurinn hér sem við erum í. Kjötsalurinn er hérna inn af. Við þyrftum að fá hann líka. En það verður bara næsta,“ segir Jónína. Úr fláningssal gamla sláturhússins. Þar eru viðskiptavinir Gæranna núna afgreiddir.Egill Aðalsteinsson Sjö konur standa að Gærunum. „Við söfnum peningum til þess að koma aftur út í samfélagið.“ „Það er okkar markmið að koma hlutum hérna í umferð aftur.“ Ágóðinn fer einkum í margs kyns tækjakaup, í kringum áttahundruð þúsund krónur á ári, segja þær. „Við erum búin að gefa til dæmis örugglega þrjár sjúkrabörur til björgunarsveitarinnar,“ segir Ása. „Já, til slökkviliðsins, skólans, leikskólans. Kaupfélagið og heilsugæsluna. Nefndu það bara. Til einstaklinga og þeirra sem þurfa á því að halda,“ segir Jónína. Gærurnar hafa leikfangahorn.Egill Aðalsteinsson Og hér er hægt að fá ótrúlegustu hluti. „Áðan kom hérna ung kona og hún hvíslaði svona að mér hvort að ég ætti kannski brúðarslör. Og ég sagði svona: „Oh, ég man það ekki, ég er ekki alveg viss.“ Og svo hljóp ég hérna baksviðs. Þar átti ég auðvitað brúðarkjól og brúðarslör. Og hún var að fara að gifta sig á miðvikudaginn næsta og hún keypti brúðarslörið með kórónunni og öllu. Segiði svo að það fáist ekki allt hér,“ segir Jónína hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Verslun Húnaþing vestra Tengdar fréttir Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Þjóðvegasjoppan íslenska er loksins að fá sinn sess í menningarsögu landsins. Á Verslunarminjasafninu á Hvammstanga er heil sjoppa að bætast í flokk safngripa og kannski ein sú merkasta á landinu. 9. júní 2026 23:40 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Sagði fósturmissinn með vilja gerðan og hótaði að taka frá henni börnin Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira
Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Þjóðvegasjoppan íslenska er loksins að fá sinn sess í menningarsögu landsins. Á Verslunarminjasafninu á Hvammstanga er heil sjoppa að bætast í flokk safngripa og kannski ein sú merkasta á landinu. 9. júní 2026 23:40