Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Bjarki Sigurðsson skrifar 11. júlí 2026 13:59 Dagmar Ýr er sveitarstjóri Múlaþings. Fjölmargir hafa gert sér leið austur í land til að njóta í veðurblíðunni þar um helgina. Sveitarstjóri Múlaþings segir það frábært fyrir sveitarfélagið að fá svo gott veður.
Hiti hefur mest náð 25 stigum á Egilsstöðum í dag. Frábært sumarveður er á öllu Austurlandi og flykkist fólk þangað í útilegu. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, segir almennt gott veður á austurhluta landsins á sumrin. „Við höfum þurft að bíða eftir því þetta sumarið, það var kaldur maí og kaldur júní. En við vonum að þetta sé allt á uppleið núna, það verði gott veður það sem eftir lifir sumars,“ segir Dagmar. Búðir geri ráðstafanir Þegar svo margir mæta á Egilsstaði líkt og um helgina þarf að huga að ýmsu. Til að mynda þurfa verslanir að bæta við vistum svo allir geti keypt sér nauðsynjar og á grillið. Einhver ár hafa búðirnar nánast tæmst. Hiti mælist 25 gráður á Egilsstöðum þessa stundina. Vísir/Vilhelm „En ég vona að þær séu búnar að læra af reynslu fyrri ára. Það var í eina tíð dálítið mikið kvartað að allt brauð og öll mjólk væri horfin úr hillum. Ég geri ráð fyrir að verslunareigendur hafi lært af reynslunni og þetta sé í toppstandi. Það er vissulega margt fólk í bænum og menn finna það úti í búð eða þegar þeir leita að plássi á tjaldsvæðinu. Það er þétt setið. Ég vona að við náum að koma öllum fyrir sem hér vilja vera,“ segir Dagmar. Fólk elski að versla úti á landi Bærinn iði af lífi og veitingamenn taka glaðir á móti fólki. „Það er líka svo gaman að versla annars staðar en heima hjá sér. Ég veit að minjagripabúðir og fatabúðir í bænum finna alveg fyrir því að Íslendingum finnst voða gaman að versla annars staðar en heima hjá sér,“ segir Dagmar.
Veður Múlaþing Verslun Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira