Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. júlí 2026 15:32 Helga Rósa og Steinunn Þórðardóttir Formenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélags Íslands gefa lítið fyrir könnun sem heilbrigðisráðuneytið lét framkvæma. Niðurstöðurnar sýna að heilbrigðisstarfsfólk styður almennt dánaraðstoð en segja formennirnir að túlka verði þær af varfærni. „
Nýlega hefur ítrekað verið vísað til könnunar sem framkvæmd var árið 2023 og dregin sú ályktun að meirihluti lækna og hjúkrunarfræðinga styðji lögleiðingu dánaraðstoðar. Sú ályktun á sér ekki traustan grundvöll,“ skrifa Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, í nýrri skoðanagrein á Vísi. Vísa þær í könnun sem Alþingi gerði heilbrigðisráðuneytinu að framkvæma árið 2023 um viðhorf heilbrigðisstarfsfólks til dánaraðstoðar. Í niðurstöðunum kemur fram að 86 prósent hjúkrunarfræðinga og 56 prósent lækna væru hlynnt dánaraðstoð. Helga Rósa og Steinunn taka fram að niðurstöður könnunarinnar byggi einungis á svörum þriggja prósenta starfandi hjúkrunarfræðinga og átta prósenta starfandi lækna. Fjögur hundruð hjúkrunarfræðingum og fjögur hundruð læknum var boðið að taka þátt en einungis 133 læknar svöruðu að þeir væru hlynntir dánaraðstoð og um 99 hjúkrunarfræðingar. „Þrátt fyrir að niðurstöður sem þessar beri að túlka af varfærni vegna lítils úrtaks, lágs svarhlutfalls og framangreindrar hættu á skekkju í svörun hefur opinberlega verið farið með þessar niðurstöður eins og staðfestingu þess að meirihluti íslenskra lækna og hjúkrunarfræðinga sé fylgjandi dánaraðstoð.“ Eigi ekki að vera eðlilegur valkostur Þetta er ekki í fyrsta skipti sem formennirnir fjalla um dánaraðstoð. „Það sem félagsfólk beggja félaga hefur endurtekið bent á er að réttur fárra má ekki leiða til þess að þrýstingur skapist á þá sem standa veikastir. Enginn ætti að þurfa að upplifa dánaraðstoð sem eðlilegan valkost vegna þess að samfélagið hefur ekki tryggt honum nægilega heilbrigðisþjónustu, líknarmeðferð eða félagslegan stuðning,“ segja Helga Rósa og Steinunn. Hins vegar eigi verkefni heilbrigðisstarfsfólks að vera að tryggja fólki bestu mögulegu meðferð, umönnun og lífsgæði til hinstu stundar. „Í þeirri faglegu umræðu sem átt hefur sér stað innan beggja félaga hefur ítrekað verið bent á að áður en svo afdrifaríkar breytingar eru teknar til skoðunar verði að tryggja sterkt heilbrigðiskerfi, jafnt aðgengi að öflugri líknar- og lífslokameðferð, skýr samtöl um meðferðarmarkmið og stefnumótun sem byggir á gagnreyndri þekkingu.“ Einnig hafi verið lögð áhersla á að læra af reynslu ríkja á við Holland og Lúxemborg, sem hafi þegar samþykkt dánaraðstoð. Þar hafi þróunin oft og tíðum verið önnur en upphafleg markmið lagasetningar gerðu ráð fyrir. Áhrif slíkrar lagasetningar á heilbrigðisþjónustuna valdi áhyggjum.
Dánaraðstoð Heilbrigðismál Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Sjá meira