Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar 14. júlí 2026 15:32 Hjá flestum þjóðum eru ákveðnir forréttindahópar, sem oft tengjast valdaöflum í þjóðfélaginu. Í gegnum aldirnar hafa þessir hópar slegið skjaldborg um forréttindi sín og ekki viljað styðja ákvarðanir sem hrufla við þeim. Þannig vildu bændur á árum áður ekki að sjósókn yrði elfd og fiskveiðar stundaðar, vegna þess að þá misstu þeir ódýran starfskraft yfir í nýja atvinnugrein. Sagt er að þegar mesta sjósóknin var stunduð af Frökkum við Íslandsstrendur skildu þeir ekkert í því að Íslendingar væru ekki að nýta fiskveiðiauðlindina, þjóðinni til hagsbóta. Íslandssagan er einnig saga forréttinda og valdhafa. Það var ekki fyrr en Nanna Rögnvaldsdóttir skrifaði bókina „Völskan“ að góð innsýn fékkst á líf hins almenna borgara á 18. öld og hversu gríðarlegur munur var á kjörum fólks eftir því hvaða samfélagshópi það tilheyrði. Ég get sennilega talið mig til vera aðili að forréttindahópi. Var heppin að fæðast inn í sterka fjölskyldu, fá að ganga menntaveginn og eiga föður sem átti sitt eigið fyrirtæki og skorti aldrei neitt. Ég fékk hins vegar ekki vinnu hjá föður mínum sem vildi að við systkinin kynntumst af eigin raun störfum í atvinnulífinu án hans aðkomu. Það var mikil gæfa að fá að kynnast lífi verkafólks og baráttu þeirra fyrir kjörum sínum. Að fá einnig að kynnast góðum stjórnendum sem sinntu sínu fólki og mátu skoðanir þeirra. Upplýsingar skipta máli Þegar fyrirtæki framkvæma skoðanakannanir um afstöðu starfsólks til vinnustaðarins eru tveir þættir sem oftast fá lægstu einkunn, laun og upplýsingagjöf. Ég hef oft rekist á stjórnendur sem telja óráðlegt að starfsfólk fái nákvæmar upplýsingar um gang fyrirtækisins. Um trúnaðarupplýsingar sé að ræða og starfsfólk gæti borið þessar upplýsingar áfram til keppinauta. Mín reynsla er önnur, vönduð upplýsingagjöf og traust til starfsfólks er grundvöllur að góðum rekstri. Nú vill svo til að stjórnvöld hafa ákveðið að leyfa þjóðinni að velja hvort aðildarviðræður við Evrópusambandið hefjist að nýju. Ekki er verið að kjósa um aðild heldur aðildarviðræður og að þeim loknum ef af verður fá kjósendur að kjósa um þann samning sem liggur á borðinu. Það þarf víðsýni Nú bregður svo við að hópur fólks sem klárlega eru fulltrúar forréttinda í samfélaginu geysast fram á vígvöllinn, notar pólitískt vald og auð til að fá fólk til að hafna því að fá að taka þátt í lýðræðislegri kosningu.Fremstir í flokki eru fyrrverandi forseti lýðveldisins, sem er á launaskrá ríkisins til æviloka og forstjóri skráðs félags í Kauphöll, félag sem er með vísitölutryggðar tekjur vegna verðbólgu. Verið er að leggja hart að einstaklingum að þeir hafni að fá upplýsingar um hvernig framtíð þeirra gæti litið út innan ESB. Hafa ber hugfast að þeir sem tilheyra ekki forréttindahópi hafa um aldir þurft að berjast fyrir réttindum sínum. Þess vegna er mikilvægt að við segjum já. Þá fáum við kannski innsýn í hvers vegna litlu þjóðirnar innan ESB eru svona ánægðar með veru sína í sambandinu. Þetta á jafnt við um almenning og fyrirtæki. Að hafna samningi fyrirfram áður en hann liggur á borðinu er ekki mikil víðsýni. Höfundur er fyrrverandi forstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar