Körfubolti

Fjölnir þiggur sæti Aþenu

Sindri Sverrisson skrifar
Fjölnir snýr aftur í Bónus-deildina.
Fjölnir snýr aftur í Bónus-deildina. Fjölnir/Toggi Media

Fjölniskonur munu spila í Bónus-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð eftir að hafa þegið sætið sem að Aþena skildi eftir laust þegar félagið dró sig úr keppni.

Frá því að síðustu körfuboltaleiktíð lauk hafa tvö lið, sem sæti áttu í Bónus-deildinni, gefið það frá sér. Hamar/Þór hélt sér uppi í deildinni en félögin tvö slitu svo samstarfi sínu og verða ekki með í Bónus-deildinni. Ármann, sem hafnað hafði í neðsta sæti Bónus-deildarinnar, tók því sæti Hamars/Þórs.

Aþena, sem vann sig upp í Bónus-deildina með því að vinna 1. deildina, hefur svo einnig hætt við að taka sæti í Bónus-deildinni og nú hefur Fjölnir samþykkt að taka sætið.

Fjölniskonur voru nálægt því að tryggja sér sæti í Bónus-deildinni í vor en töpuðu á endanum í umspili við Hamar/Þór.

Kvennalið Fjölnis í körfubolta varð deildarmeistari í efstu deild vorið 2022 og var það fyrsti stóri titillinn í sögu félagsins. Félagið dró sig hins vegar úr keppni í deildinni tveimur árum síðar og hefur spilað í 1. deildinni síðustu tvö tímabil. Núna snýr liðið hins vegar aftur í efstu deild.

Í tilkynningu á heimasíðu Fjölnis segir að liðið hafi sýnt að það eigi fullt erindi meðal þeirra bestu.

„Fram undan er spennandi verkefni þar sem leikmenn, þjálfarar, sjálfboðaliðar og stuðningsfólk munu sameinast um að gera liðið samkeppnishæft í deild þeirra bestu. Nú er tækifærið til að fylkja sér á bak við liðið og styðja við áframhaldandi framþróun kvennakörfunnar í Grafarvogi,“ segir í tilkynningunni.

Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, segir í tilkynningunni: „Við höfum lagt mikla áherslu á markvissa uppbyggingu á kvennastarfinu og það er afar ánægjulegt að sjá þá vinnu skila sér. Ég er gríðarlega stoltur af þeim árangri sem liðið hefur náð á þessum tíma og hef fulla trú á því að stelpurnar standi sig vel í Bónus deildinni. Það sem gerir þetta enn ánægjulegra er að kjarninn í liðinu er skipaður uppöldum Fjölnisstelpum sem hafa unnið sér inn þetta tækifæri með dugnaði og metnaði. Þessi áfangi hefði þó aldrei náðst án þess öfluga samstarfs og stuðnings sem við höfum notið frá öllum þeim fjölmörgu sem koma að starfinu utan vallar. Það er ómetanlegt að hafa svona sterkt bakland og fyrir það erum við afar þakklát.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×