Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar 16. júlí 2026 10:31 Ég var staddur erlendis á sýning fyrir um það bil 30 árum og eitt kvöldið sat ég ásamt nokkrum Íslendingum við borð þar sem nokkrir Bretar og Hollendingar voru einnig. Þegar líða fór á kvöldið var komin smá glens og gleði í fólkið þá spurði einn Bretinn mig í gríni hvort Ísland væri með landslið i fótbolta. Ég svaraði að við værum fámenn þjóð þannig að landsliðið væri kannski ekki mjög gott. Ég bætti svo við að reyndar værum við ekki með sjóher, bara með örfá landhelgisgæsluskip, og þrátt fyrir það væri Ísland eina þjóðin i heiminum sem hefði farið þrisvar í stríð við Bretland og unnið þau öll þrjú. Við þetta kláraðist það grín og þegar við sendum Bretana heim frá Frakklandi, hlakkaði smá auka í mér, vonaði að þessir ungu menn myndu enn eftir brandaranum. Öll okkar landslið, kvenna og karla, hafa styrkt sig verulega á þessum tíma. Ég tel að það sé mikið til vegna þess fjölda ungra Íslendinga sem hafa flust erlendis, gengið i klúbb og orðið atvinnumenn í sinni íþrótt og komið enn sterkari í landsliðin okkar. Þetta er gott dæmi um hvernig samvinna virkar og hvernig samvinna er grunnur árangurs í félagsíþróttum Ein fámennasta þjóð veraldarinnar kom því í gegn að öll strandríki í heiminum hafa núna 200 mílna landhelgi eða miðlínu sem miðast við 200 mílur. Það var ekki lítil hrædd og úrræðalaus þjóð sem tókst á við eitt sterkasta hernaðarríki veraldarinnar. Við beittum okkar litlu varðskipum gegn skipum við ólöglegar veiðar og við létum ekki skipherra Breskra herskipa segja okkur fyrir. Við skárum á togvíra og við sendum freigátur Breta í slypp, en við hefðum aldrei unnið þessi þorskastríð svokölluðu ef við hefðum ekki verið í NATO. Á bakvið þennan árangur var ótrúlegt fólk, bæði til sjós og í fundaherbergjum ásamt baklandi NATO. Nú standa nokkrir „Nei sinnar“ sem voru mjög á móti NATO á þessum tíma (Ísland úr NATO og herinn burt) og voru fyrstir til að skrifa undir fyrsta Icesave samninginn sem hefði sennilega farið jafn illa með Ísland og Versalasamningurinn fór með Þjóðverja eftir fyrstu heimstyrjöldina. Hér vil ég minna á að það sem bjargaði okkur var að Bretar og Hollendingar höfnuðu fyrsta samningnum sem Ólafur Ragnar Grímsson hafði samþykkt. Það var svo seinni útgáfan sem hann skrifaði ekki undir eftir að 60 þúsund Íslendingar höfðu krafist þess og samningurinn var settur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það verða ekki sömu einstaklingar við fundarborðin og þegar samið var um 12 mílur, 50 mílur og síðan 200 mílur ef viðræður Íslands og ESB halda áfram, en ég er 100% viss um að sami andinn verður við hvert fundarborð. Andi sterkra Íslendinga sem munu ekki eitt augnablik víkja frá hag þjóðarinnar við vonandi komandi samningagerð. Ég ber mjög mikla virðingu fyrir því fólki sem samdi fyrir okkar hönd við Sameinuðu þjóðirnar, NATO, EFTA. Norðurlandaráð, EES , einnig um landhelgina. Einnig má minnast á Íslensku lögfræðingana sem unnu sýknun Íslands hjá EFTA dómstólnum vegna Icesave og mér finnst það ákveðinn vanvirðing við þetta fólk, að segja nú AÐ VIÐ GETUM EKKI SAMIÐ. Ég grínast oft að það sé ekki í okkar Víkingaeðli að þora ekki að skoða hið óþekkta, en öllu gríni fylgir einhver alvara. Alvaran er sú að Ísland er Ísland í dag vegna þessa gena okkar sem gefast ekki upp og berjast fram í rauðan dauðan fyrir heiðri, sérstöðu og tilvist okkar frábæru þjóðar. Sigurður Ingi fyrrverandi formaður Framsóknarflokksin sagði fyrir stuttu að Íslendingar væru komnir með „verðbólgugen“. Þetta er mjög skýrt dæmi um hvernig og hversu margir stjórnamálamenn eru ekki í neinum alvöru tengslum við þjóðina. ÍSLENDINGAR eru ekki með VERÐBÓLGUGEN. ÍSLENDINGAR ERU MEÐ. „ÞETTA REDDAST GEN“ og þess vegna hafa lélegir stjórnmálamenn komist upp með alltof mikið, því þjóðin lét hlutina samt REDDAST Ég mun segja já, til að SJÁ, 29. ágúst og ég vildi óska þess að það fólk sem aldrei hefur þurft að borga verðtryggingu, sjái sóma sinn í því að leyfa, sérstaklega unga fólkinu okkar að sjá hvað er í boði og leyfa þeim síðan að taka UPPLÝSTA ÁKVÖRÐUN þegar mögulegur samningur liggur fyrir. Höfundur er Evrópusinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar