Innlent

Á­fram Ís­land með opinn fund á Skaganum

Árni Sæberg skrifar
Vilhjálmur, Álfheiður og Valdís flytja ræður á fundinum.
Vilhjálmur, Álfheiður og Valdís flytja ræður á fundinum. Vísir

Samtökin Áfram Ísland, sem berjast fyrir því að þjóðin segi nei við áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið, blása til opins fundar í Brekkubæjarskóla á Akranesi klukkan 17. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér á Vísi.

Ræðumenn á fundinum verða Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Valdís Marselía Þórðardóttir, tannlæknir, móðir og áhrifavaldur. Fundarstjóri verður Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur.

Sjá má fundinn í spilaranum hér að neðan:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×