Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2026 18:32 Friðrik Þór Halldórsson og Haukur Örn Birgisson kátir á Royal Birkdale-golfvellinum. Golfsamband Íslands Enginn íslenskur kylfingur er á meðal keppenda á Opna breska risamótinu í golfi, The Open, í ár en þar verða samt Íslendingar í áhugaverðum hlutverkum.
Golfsamband Íslands segir frá tveimur öflugum fulltrúum Íslands á einu af stærsta golfmóti ársins. Haukur Örn Birgisson gegnir hlutverki við framkvæmd og dómgæslu mótsins, auk þess sem Friðrik Þór Halldórsson myndatökumaður starfar við upptökur á Royal Birkdale-golfvellinum. Haukur Örn situr í fimm manna framkvæmdastjórn The Open og verður á Royal Birkdale-golfvellinum alla mótsvikuna. Haukur Örn verður jafnframt einn af dómurum mótsins á fyrstu þremur keppnisdögunum. Hver og einn ráshópur á The Open fær úthlutaðan dómara sem gengur með þeim allan hringinn. Á fyrsta hring fylgdi Haukur Örn ráshópi með Bandaríkjamanninum Stewart Cink, Scott Vincent frá Simbabve og Svíanum Joakim Lagergren. Á öðrum hring fylgdi Haukur þeim Tom Kim, Billy Horschel og Mason Howell. Friðrik Þór Halldórsson verður einnig á Royal Birkdale við myndatökur á mótinu. Á fyrstu tveimur keppnisdögunum fékk hann það verkefni að fylgja einu áhugaverðasta hollinu. Þar leika saman Spánverjinn Jon Rahm, heimamaðurinn Tommy Fleetwood og Bandaríkjamaðurinn Jordan Spieth. Ásamt þeim félögum eru nokkrir aðrir Íslendingar á svæðinu. Þar á meðal eru Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ og Hulda Bjarnadóttir forseti GSÍ, sem hélt erindi á vegum R&A um samfélagslegt virði golfs á Íslandi. Mótið er í beinni útsendingu á SÝN Sport. Útsending frá öðrum hring stendur nú yfir og útsending frá þriðja hring hefst strax klukkan níu í fyrramálið. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf)
Opna breska Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira