DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2026 19:57 Bryson DeChambeau hefur leikið vel á fyrstu tveimur dögum mótsins og er líklegur til að berjast um síðasta risatitil ársins um helgina. Getty/Michael Reaves Ástralski kylfingurinn Lucas Herbert er með eins höggs forskot eftir tvo daga á Opna breska risamótinu í golfi, The Open, eftir ótrúlega spilamennsku í dag.
Herbert lék á átta höggum undir pari og jafnaði vallarmetið á Royal Birkdale-golfvellinum en hann lék fyrsta hringinn á pari. Herbert er því samanlagt á átta höggum undir pari. Bandaríkjamaðurinn Bryson DeChambeau endaði hringinn á tveimur fuglum á síðustu tveimur holunum og minnkaði því forskotið í eitt högg. DeChambeau fékk fimm fugla á hringunum og lék hann á fjórum höggum undir pari. Hann er því á sjö höggum undir pari samanlagt. DeChambeau hafði ekki komist í gegnum niðurskurðinn á fyrstu þremur risamótum ársins og því afar ánægjulegt fyrir hann og hans aðdáendur að sjá hann líklegan til að berjast um sigurinn á mótinu. Brilliant up-and-down by @brysondech on the 9th as he moves to -4.Follow DeChambeau, Scheffler and Hatton: https://t.co/iry73fxk6j pic.twitter.com/lI3CFoUuCG— The Open (@TheOpen) July 17, 2026 Bandaríkjamennirnir Cameron Young, Ryan Gerard og Jackson Suber deila þriðja sætinu á sex höggum undir pari en Suber var í forystu eftir fyrsta hring þar sem hann lék á fimm höggum undir pari. Sam Burns lék einnig á átta höggum undir pari í dag eins og Herbert en hann er bara í sjötta sæti af því að hann var á þremur höggum yfir pari á fyrsta hring. Burns deilir sjötta sætinu með Suður-Kóreumanninum Si Woo Kim sem var á þremur höggum undir pari í dag. Bein útsending Sýn Sport frá þriðja deginum hefst klukkan níu í fyrramálið en allt mótið er í beinni útsendingu um helgina.
Opna breska Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira