Púttin að leika Scheffler grátt Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. júlí 2026 11:02 Scottie Scheffler stefnir á titilvörn. Jacob King/PA Images via Getty Images Scottie Scheffler hefur verið að skila sér inn á flatirnar í færri höggum en flestir, sem hann segir boða gott í titilvörninni á Opna breska meistaramótinu í golfi, en púttin hafa ekki verið að detta hjá honum.
Ríkjandi meistari mótsins er jafn í 8. sæti, fjórum höggum undir pari, þegar mótið er hálfnað. Scheffler skilaði sér í hús á 68 höggum í gær, líkt og í fyrradag, en horfði líka á eftir nokkrum fuglum fljúga frá honum. Alls klikkaði Scheffler á sjö púttum fyrir fuglum, fjögur af þeim voru af minna en þriggja metra færi. „Ég gerði margt vel. Ég kom mér í mjög góðar stöður. Vildi bara að ég hefði hitt úr fleiri púttum,“ sagði Scheffler í gærkvöld. Scheffler náði þó að pútta fyrir fugli á 5. holu, sömu holu og spilfélagi hans Bryson DeChambeau fékk tveggja högga víti. Scheffler er nú fjórum höggum á eftir Lucas Herbert, sem leiðir listann eftir að hafa jafnað vallarmetið á Royal Birkdale vellinum í gær. „Ég held bara áfram að banka á hurðina, held áfram að koma mér í góðar stöður. Ef ég held áfram að slá svona vel verð ég í fínum málum,“ sagði Scheffler en sá síðasti til að verja Opna breska meistaratitilinn var Padraig Harrington árið 2008. Opna breska meistaramótið er í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Opna breska Tengdar fréttir Stuttu pútti frá besta hring sögunnar Ástralinn Lucas Herbert náði aðeins að jafna besta hring í sögu risamótanna í golfi, þegar hann jafnaði vallarmet á Royal Birkdale vellinum með 62 högga hring. Hann var hársbreidd frá því að slá metið en klikkaði á metra löngu pútti. 17. júlí 2026 13:27 Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Ótrúlegar senur voru á Opna breska risamótinu í golfi þegar tveir kylfingar jöfnuðu vallarmet Royal Birkdale-vallarins þar sem mótið er haldið. Lucas Herbert jafnaði vallarmetið og stuttu seinna gerði Sam Burns slíkt hið sama. 17. júlí 2026 14:01 Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira
Stuttu pútti frá besta hring sögunnar Ástralinn Lucas Herbert náði aðeins að jafna besta hring í sögu risamótanna í golfi, þegar hann jafnaði vallarmet á Royal Birkdale vellinum með 62 högga hring. Hann var hársbreidd frá því að slá metið en klikkaði á metra löngu pútti. 17. júlí 2026 13:27
Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Ótrúlegar senur voru á Opna breska risamótinu í golfi þegar tveir kylfingar jöfnuðu vallarmet Royal Birkdale-vallarins þar sem mótið er haldið. Lucas Herbert jafnaði vallarmetið og stuttu seinna gerði Sam Burns slíkt hið sama. 17. júlí 2026 14:01