Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar 18. júlí 2026 15:03 Hvernig náum við til ykkar? Ykkar sem vitið vel hvað er í gangi í Palestínu og sýnið engin viðbrögð? “Við”, í merkingunni félagsfólk í Vonarbrú almannaheillafélagi, höfum velt þessari spurningu upp aftur og aftur þegar okkur virðist sem tómlæti og afskiptaleysi ríki meðal almennings, hvað þá stjórnvalda. “Við” erum bara hópur venjulegs fólks, enn með veika von um að mennskan sigri að lokum. Örugglega voðalega vók í augum einhverra en ef vók þýðir í huga ykkar dyggðaskreyting á það ekki við okkur. Við erum raunverulega að sinna fólki, veita sálarhjálp, fjárhagsaðstoð eftir fremsta megni, neyðaraðstoð, hvatningu og hlý orð. Við erum í daglegum samskiptum við fólk sem líður þjáningar í þjóðarmorði, dag eftir dag í bráðri lífshættu, nær daglega fáum við fregnir af einhverjum sem var myrtur, einhverjum fjölskyldumeðlimi eða vini viðkomandi. Í miðju “vopnahléi”. Nokkur handahófskennd dæmi: Sprengju var varpað á fólk í jarðarför í gær, 7 drepnir þar og fleiri slasaðir. 10 ára drengur var myrtur (skotinn í brjóstið) í síðustu viku, þar rétt áður var 9 ára stúlka sölluð niður í skothríð, fyrir örfáum dögum lifði lítið barn eitt af sprengjuárás um miðja nótt, báðir foreldrar og systir voru myrt í árásinni, það lifði eitt af, stórslasað og munaðarlaust í landi þar sem öll heilbrigðisþjónusta er í molum. Mögulega á þetta barn ættingja á lífi en miklar líkur eru á að einhver þeirra sitji í Ísraelsku fangelsi, án dóms og laga, sæti þar pyntingum og á endanum dauðdaga. Fyrir það eitt að vera Palestínumenn. Á Vesturbakkanum ganga síðan landræningjar lausum hala með stuðningi hersins, drepa þar fólk og fénað og hrekja af löndum sínum. Nei það er alveg sama hvernig við orðum þetta. Við virðumst ekki ná til ykkar. Hvers vegna ekki? Ég held að það megi skipta “ykkur” í nokkra flokka – sem svarar mögulega spurningu minni. 1. flokkur. Þið sem vitið hvað er í gangi en treystið ykkur ekki til að hugsa um það hvað þá bregðast við því. Þetta er að mörgu leyti skiljanlegt því þetta er of hræðilegt til að hugsa um það ekki satt?Við ykkur vil ég segja: ég skil ykkur. Þetta er vont, þetta er yfirþyrmandi og þetta raskar sálarró. En það er samt betra að gera eitthvað. Ég hef verið báðum megin og þó þetta sé erfitt er það mun betra en að gera ekkert. Ég legg til að þið byrjið á einu litlu atriði; þegar þið sjáið færslur frá okkur t.d. á facebook, smellið á okkur einu lyndistákni, hjarta, knúskalli eða bara þumli. Það hjálpar okkur í algoritmanum og styrkir okkur sálrænt í okkar baráttu. Og þegar þið eruð aðeins lengra komin, getið þið prófað að vingast við eins og eina fjölskyldu í Gaza. Hún á eftir að biðja ykkur um hjálp og ég veit að það hljómar ógnvænlega en munið, þið eruð á Íslandi, þau eru í Gaza og þau komast ekki til ykkar nema í gegnum netið. Þið getið þá alltaf lokað á þau aftur ef ykkur misbýður hjálparköll þeirra. Oftast er líka hjálpin einfaldlega einmitt fólgin í því að smella á þau einu og einu hjarta, knúskalli eða þumli, svo þau viti að það er fólk þarna úti sem er ekki gersneytt allri mannúð. flokkur. Þið sem haldið að það sé ekkert hægt að gera. Það er ekki hægt að bjarga öllum, þessi ófriður er búinn að eiga sér stað þarna áratugum, jafnvel öldum saman, hvernig á litla Ísland að bjarga einhverju?Við ykkur vil ég segja: Það er rétt. Við getum ekki bjargað öllum og við getum eitt og eitt í einu ekki stöðvað þjóðarmorð. En ef allir gera eitthvað þá blaka fiðrildavængirnir og mynda á endanum öldu mannúðar sem stöðvar illskuna. Og þó ekki sé hægt að bjarga öllum er hægt að bjarga einhverjum. Til dæmis í gegnum Vonarbrú. Ég bið ykkur um að kynna ykkur starf Vonarbrúar. Við erum ekki að styrkja hryðjuverkamenn, við erum ekki að safna fé sem rennur í einhverja yfirbyggingu. Við erum að styðja barnafjölskyldur, allt saman margfalt vottað, staðsetningar staðfestar með GPS og fleiri aðferðum, sögur sannreyndar og aðstoðin kemst sannanlega til skila. Og þessi aðstoð hefur bjargað mannslífum oftar en hægt er að nefna í þennan stutta tíma (rétt rúma ár) sem Vonarbrú hefur formlega verið starfrækt. flokkur. Þið sem haldið í blekkinguna og trúið “hasbara” áróðrinum frá ísraelskum tölvuverum sem dæla út frösum á borð við þessa:„Þetta er allt saman lygi, þetta er ekki að gerast“„Þetta er kannski að gerast en það eru Hamas sem standa fyrir því eða allavega þeim að kenna, sko 7. október!!! Ísrael þarf að verja sig! Við erum að ná hryðjuverkamönnum og drepa þá!“„Allt í lagi, þetta var ísraelski herinn sem gerði þetta og þetta voru almennir borgarar en það voru mistök, við munum rannsaka málið, já við ætlum að rannsaka sjálfa okkur, er eitthvað að því?“„Allt í lagi, hérna, hérna, ERTU GYÐINGAHATARI?!“Við ykkur vil ég segja: gerið sjálfum ykkur og börnum ykkar og barnabörnum þann greiða að opna augun fyrir því sem er í gangi og hefur verið í gangi. Allt síðan vestræn ríki tóku þá ákvörðun að gefa land sem þau áttu ekkert með að gefa. Hvernig kúgunin, arðránið, óréttlátið og ofbeldið hefur magnast upp áratugum saman og er nú komið á þann stað að ekki verður aftur snúið án verulegs uppgjörs við þennan hræðilega tíma í mannkynssögunni. Hvar viljið þið vera stödd þegar mennskan á afturkvæmt? (Má t.d bjóða ykkur að kynna ykkur síðuna https://archivegenocide.com/?) flokkur. Þið sem teljið fólkið sem er að verða fyrir þessu eiga það skilið. Þið sem hafið tekið þátt í afmennskuninni. Þið sem eruð gallharðir síonistar og styðjið ísraelsk stjórnvöld.Við ykkur hef ég ekkert að segja. Ég veit ég næ ekki til ykkar.Þið hin, getið þið mátað ykkur í hina þrjá flokkana? Og byrjað að blaka fiðrildavængjunum? Höfundur er félagsráðgjafi og meðstjórnandi í Vonarbrú. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun