Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar 20. júlí 2026 13:33 Fyrir nokkrum dögum birtist auglýsing á vegum „Áfram Ísland-hópsins“ sem stuðaði „Já til að sjá-hópinn“. Í auglýsingunni stóð að kosið yrði um aðild 29. ágúst næstkomandi. Alveg óháð því hvernig fólk gerir grein fyrir atkvæði sínu, þá er það þegar öllu er á botninn hvolft raunin að x við já er yfirlýsing á vilja til inngöngu í Evrópusambandið. Enda fer ESB ekki að ræsa – eða endurræsa í tilviki Íslands – aðildarferli nema skýr vilji sé fyrir aðild af hendi umsóknarríkisins. Eins og stendur í 49. grein Sáttmálans um Evrópusambandið (Lissabon-sáttmálans), þá er ekki verið að semja við framkvæmdastjórn ESB, heldur við hvert og eitt þeirra 27 aðildarríkja sem mynda sambandið. Framkvæmdastjórnin stýrir hins vegar tæknilegu rýninni og ferlinu í umboði aðildarríkjanna, eftir þeirri forskrift sem samþykktir ESB leiða af sér. Þótt talað sé í greininni um „þær breytingar á sáttmálum þeim sem sambandið byggir á“, þá er það í dag afar sjaldgæft og ólíklegt að samið verði um breytingar á sjálfum grunn-sáttmálum ESB vegna nýs aðildarríkis. Það er hins vegar ekki lagalega eða tæknilega ómögulegt, en aðildarríkin 27 þyrftu þá að samþykkja slíkar breytingar samhljóða. Sérlausnir í formi tímabundinna fresta á einstaka ákvæðum þurfa sömuleiðis samþykki allra aðildarríkja. Reyndar er það svo að hvert einasta skref ferlisins þarf einróma samþykki allra aðildarríkja: fyrst samþykkt umsóknarinnar, síðan skilyrði fyrir opnun og lokun á hverjum einasta af þeim 35 viðræðuköflum sem um ræðir, og svo að lokum á aðildarsamningnum í heild sinni. Það þýðir í rauninni að eitt eitt aðildarríki getur stöðvað ferlið ef því mislíkar eitthvað við það. Sama rétt hefur umsóknarríkið auðvitað líka. Aðildarferlið miðast alltaf við það að umsóknarríkið sé að sækja um aðild og finna tæknilegar útfærslur á því hvernig það aðlagast regluverkinu, en ekki að „kanna hvað sé í boði“ eða hvað aðild feli í sér. Enda liggja grundvallarreglurnar og meginatriðin þegar fyrir á heimasíðu ESB. Það er því í stóra samhenginu verið að kjósa um aðild, sem umbeðið aðildarferli myndi leiða af sér. Hins vegar er hverjum aðila máls – hverju aðildarríki eða umsóknarríki – heimilt að stöðva ferlið og þar með inngönguna á hvaða tímapunkti sem er; í síðasta lagi í staðfestingarferli aðildarsamningsins. Allt tal um að verið sé að kjósa um hvort eigi að „skoða eitthvað“, skoða hvað sé í boði eða þess háttar, er því auðvitað bara til heimabrúks í hinu væntanlega umsóknarríki. Reyndar er það ótrúlegt að kjörnir fulltrúar og forystufólk – núverandi og fyrrverandi – þeirra stjórnmálaflokka sem talað hafa fyrir aðild um árabil, skuli tala með þeim hætti að um einhvers konar skoðun á „tilboðsmarkaði ESB“ sé að ræða. Enda er sanngjarnt og eðlilegt að ganga út frá því að sá sem talar um árabil fyrir aðild, viti hvað í henni felst og hvers sé ætlast af umsóknarríki í framkvæmd. Óháð atkvæðaskýringum hvers og eins er verið að kjósa um hvort halda eigi áfram viðræðum á grundvelli umsóknarinnar frá 2009. Með því já-umboði er auðvitað veitt heimild til að ganga til skuldbindandi aðildarferlis að ESB, þar sem endanlegur lokapunktur er innganga eða aðild. En eins og rakið er hér að ofan, þá hafa umsóknarríkið og aðildarríkin 27 öll sjálfstætt val um það hvort þeim lokapunkti verður á endanum náð eða ekki. Höfundur er formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Kristinn Karl Brynjarsson Mest lesið Halldór 22.08.2026 Halldór Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad Skoðun Skoðun Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Skoðun ESB-aðild eykur áhrif smáríkja. Reynsla Íra er mjög jákvæð Dominic Scott skrifar Sjá meira
Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun