Sviptingar í stjórn Amaroq Samúel Karl Ólason skrifar 22. júlí 2026 08:00 Eldur Ólafsson er stofnandi og forstjóri málmleitarfélagsins Amaroq minerals, sem vinnur að gullgreftri í Grænlandi. Nokkrar breytingar eru að eiga sér stað á stjórn málmleitarfélagsins Amaroq. Sigurbjörn Þorkelsson tekur við formennsku stjórnarinnar af Graham Stewart. Sá hefur verið formaður undanfarin sjö ár en verður áfram í stjórninni. Þá taka þrír nýir stjórnarmenn sér sæti.
Það eru þau Annette Brøndholt, Jorunn Johanne Sætre og Teitur Poulsen. David Neuhauser, sem setið hefur í stjórn Amaroq frá 2001, hættir. Breytingarnar eiga að taka gildi þegar félagið verður skráð í kauphöllina í Lundúnum og á það að gerast í fyrsta lagi þann 31. júlí. Í yfirlýsingu sem Amaroq birti í gær er haft eftir Stewart að stjórnin taki vel á móti áðurnefndum þrímenningum og að sameiginleg reynsla þeirra á sviði námuvinnslu, fjármála, orkumála og í stjórnun muni bæta stjórnina verulega. Þar er einnig haft eftir Sigurbirni að honum sé það mikill heiður að taka við formennsku stjórnar félagsins á svo mikilvægum tímapunkti. Hann þakkar Graham fyrir vel unnin störf og býður verðandi nýja stjórnarmeðlimi velkomna. Amaroq var skráð í kauphöll í Kanada en forsvarsmenn félagsins létu afskrá það þar fyrr á árinu. Áfram var það skráð á AIM, Nasdaq Iceland og OTCQX. Sjá einnig: Taka Amaroq af markaði í Kanada Þá gaf fyrirtækið fyrr á árinu út nýja afkomuspá fyrir 2026 sem var umfram fyrri væntingar. Samkvæmt henni verður framleiðsla í Nalunaq-gullnámunni meiri en áður var talið.
Amaroq Minerals Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira