Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Jakob Bjarnar skrifar 22. júlí 2026 12:14 Vallarstjórar á suðvesturhorni hljóta að horfa til fordæmis vallarstjóra í Mofellssveitinni sem hafa gripið til þess að loka Bakkakotsvelli, þar er allt á floti. Golfklúbbur Mosfellsbæjar Grjótharðir golfarar á suðvesturhorninu láta úrhellisrigningu í júlí ekki trufla sig en stundum er nóg nóg. Golfklúbbur Mosfellsbæjar hefur lokað Bakkakotsvelli sem er orðinn vatnssósa. „
Það heldur áfram að rigna og staðan er því miður ekki nægilega góð uppi í Bakkakoti þar sem völlurinn er orðinn vatnsósa og erfitt að komast um hann. Gerum við þetta til þess að hlífa vellinum og koma í veg fyrir skemmdir,” segir í tilkynningu sem vallarvörður hefur sent frá sér. Sannast sagna hefur ekki viðrað vel fyrir golfara það sem af er júlímánuði. Bakkakotsvelli verður lokað í dag og hefur þeim kylfingum sem áttu bókaðan rástíma þar verið sendur póstur þar að lútandi. Ekki er vitað hvernig ástand annarra valla er en ekki er ósennilegt að gripið verði til sömu ráða á fleiri bæjum. „Veðurspáin fram undan er hagstæð og sól í kortunum. Vonandi verður þetta bara í dag,“ segir í tilkynningunni en þó sagt að mögulega geti votviðrið staðið fram eftir degi og á morgun. Uppfært 13:08 Nú hefur Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar bæst í hópinn: „Þar sem vellirnir okkar eru mjög blautir eftir vætutíðina undanfarið þá verða golfbílar ekki leyfðir næstu tvo daga a.m.k, þ.e. miðvikudag og fimmtudag.“ Þeir í GKG banna golfbíla næstu tvo daga. Búast má við því að fleiri golfklúbbar fylgi í kjölfarið enda allt á floti.
Veður Mosfellsbær Golf Golfvellir Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira