„Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 26. júlí 2026 15:34 Una Margrét Jónsdótir rithöfundur. Tugir íslenskra rithöfunda hafa orðið fyrir barðinu á svindlurum sem reyna að svíkja fé af þeim með því að selja þeim falska kynningu á ritverkum þeirra á erlendri grundu.
Una Margrét Jónsdóttir rithöfundur greinir frá þessu á Facebook síðu sinni en slíkur svindlari setti sig í samband við hana undir dulnefninu Danielle Kushner og hrósaði skáldsögu Unu í hástert. „Hún byrjaði með miklu hrósi um bókina mína, Silfuröld revíunnar, og ég var nú alveg grandalaus fyrst og fannst ánægjulegt að fá þetta hrós, eins og öllum rithöfundum finnst. Þegar leið á bréfið fór hún að tala um að hún starfaði við að kynna bækur á alþjóðavettvangi og að bók mín þyrfti einfaldlega að ná til fræðimanna og áhugamanna um leiklist erlendis. Þá fór ég að verða dálítið tortryggin.“ Una átti í töluvpóstsamskiptum við Kushner en tók eftir því að ákveðinn gervigreindarbragur var á orðsendingunum. „Ég er svo óvön að lesa gervigreindartexta að ég varaði mig ekki strax á þessu. Sem betur fer er ég alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga sem koma frá útlöndum. Ég skrifaði kurteislegt bréf og þakkaði henni fyrir en spurði hvort slíkt hlyti ekki að kosta eitthvað og jú jú, það kom í næsta bréfi að það væri hægt að kaupa kynningarpakka fyrir annaðhvort 400 eða 700 evrur.“ Þá hafi runnið á hana tvær grímur. Það komi henni mest á óvart hve sannfærandi svindlið hafi verið og skrifað á ágætu máli. „Mér fannst dálítið undarlegt að kona með erlendu nafni gæti lesið bók mína á íslensku og skrifað svona góða íslensku. Ég sé að vísu núna þegar ég skoða bréfið betur að það eru ýmsir hnökrar sem ég tók ekki eftir strax.“ Una hafi ítrekað spurt konuna hvort hún væri íslensk sem hún vék sér alltaf undan. Vinir hennar hafi þá bent henni á að textinn hefði einkenni gervigreindar. „Þegar ég var næstum orðin sannfærð um að þetta væri svindl þá kemur fjórða bréfið frá þessari konu þar sem hún fer að ýta á mig og segir að ég þurfi helst að taka ákvörðun fyrir mánudaginn og þessi póstur var á föstudegi. Maður hefur heyrt þetta sé einmitt einkenni svindlara að fá þá sem þeir eru að svindla á að ákveða sig fljótt.“ Þá fékk hún tölvupóst frá Rithöfundasambandinu um að svindlari hefði reynt að svindla á fleiri rithöfundum. „Ég fékk þá hlekk á fésbókarsíðu félaga í Rithöfundarsambandinu og þá sá ég að rithöfundar voru að ræða um þetta og höfðu fengið sams konar bréf undir ýmsum nöfnum, sumir undir sama nafni og ég og aðrir undir öðrum nöfnum. Mér sýndist þetta vera svona um það bil 20 höfundar eða fleiri.“ Hún segist ekki átta sig á því hví svindlarar herji á íslenska höfunda en tekur fram að svona svik eigi sér líka stað erlendis. „Þetta er svolítið ergilegt en sem betur fer eyddi maður ekki miklum tíma í þetta og maður er reynslunni ríkari. Einhver grínaðist nú með að þetta væri besta gagnrýni sem hann hefur nokkurn tímann fengið.“
Bókaútgáfa Bókmenntir Gervigreind Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent „Ég elska Obbu“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Sjá meira