Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. júlí 2026 16:15 Það virðist heldur meira að gera á vestanverðu landinu um helgina. vísir Ein stærsta ferðahelgi ársins er að renna upp þar sem landinn mun leggja leið sína á hinar ýmsu hátíðir víðs vegar um land. Hér er hægt að sjá hvað stendur ferðalöngunum til boða um verslunarmannahelgina. Suðurland Þjóðhátíð í Eyjum þarf vart að kynna en í ár ætlar Ágúst Brynjarsson að þreyta frumraun sína í brekkusöng. Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör sömdu þjóðhátíðarlagið í ár sem þau munu frumflytja á föstudag, á laugardag munu Friðrik Dór, Bandmenn og Doctor Victor skemmta gestum og loks á sunnudag stíga Pálmi Gunnars, Jón Jónsson og Stuðlabandið á svið. Flúðir um Versló verður sömuleiðis á sínum stað með traktoratorfæru, sláttutraktorarallý og Siggu Beinteins á laugardeginum. Á sunnudaginn mætir Leikhópurinn Lotta fyrir yngri kynslóðirnar en Bandmenn skemmta þeim eldri um kvöldið. Hljómsveitin Skítamórall ætlar síðan að fylla hið goðsagnakennda félagsheimili Aratungu í Bláskógabyggð á laugardag og leika sín allra bestu lög. Það verður sannkallað sveitaball í kvöldvökuformi. Kristilega fjölskyldumótið Kotmótfer fram í Fljótshlíð. Mótið verður opnað með grilluðum pylsum en einnig verða í boði hópleikir fyrir fjölskylduna, bænastundir og alls konar samkomur. Sérstök dagskrá er fyrir bæði unglinga og börn þar sem þau skella sér í sund eða kíkja á kvöldvöku. Höfuðborgarsvæðið Amor Vincit Omnia opna tónlistarhátíðina Innipúkann sem verður haldin í Austurbæjarbíói og taka GDRN, gugusar og Emmsjé Gauti við. Alla þrjá daga hátíðarinnar verður hægt að kíkja á markaðinn Nískupúkann. Á laugardagskvöld munu Álfgrímur, Múr, Retro Stefson og FM Belfast skemmta gestum en á sunnudag verða það Izleifur, Elín Hall og Joey Christ. Lokahelgi Hjarta Hafnarfjarðar er um helgina þar sem Hreimur verður með PopQuiz á fimmtudag og Stuðlabandið stígur á svið með Röggu Gísla og Stebba Hilmars. Land og synir og Sandra Barilli sjá um skemmtunina á föstudag og á lokakvöldinu sjálfu verður Nýdönsk. Hjónin Regína Ósk og Svenni tóku sig til fyrir nokkrum árum og buðu upp á brekkusöng í Salahverfinu í Reykjavík. Þau halda ótrauð áfram í ár og verður söngurinn á föstudagskvöldið klukkan 20. Þau hvetja fólk til að mæta með stóla og teppi á túnið við Roðasali. María Qing Sigríðardóttir sellóleikari og Ásta Dóra Finnsdóttir píanóleikari spila sónötu Beethovens á Gljúfrasteini á sunnudag um verslunarmannahelgina. Norðurland Búist er við metfjölda á Einni með öllu á Akureyri þar sem yfir daginn verður boðið upp á markaðsstemningu á Ráðhústorginu en stórtónleika á laugardags- og sunnudagskvöld. FM95BLÖ auk gesta sjá um að skemmta gestum á laugardag en á sunnudag kemur úrval tónlistarfólks fram líkt og JóiPé og Króli, Bríet, Aron Can, Páll Óskar og fleiri. Norðanpaunk býður upp á þriggja daga hátíð þar sem tónlistin dynjar frá hádegi fram á kvöld. Hátíðin er haldin á Laugarbakka og koma þar fram bæði íslenskar hljómsveitir en einnig ítalskir, breskir og hollenskir listamenn. Síldarævintýrið á Siglufirði verður á sínum stað þar sem tónlistin mun óma á Ráðhústorginu alla helgina. Ástarpungarnir og Jónsi verða með stórtónleika, Bjössi brunabangsi og Íþróttaálfurinn munu láta sjá sig auk Leikhópsins Lottu. Þá verður hægt að kíkja á froðufjör slökkviliðs Fjallabyggðar. Þetta árið fer Unglingalandsmót UMFÍ fram á Sauðárkróki þar sem fjölbreyttar keppnisgreinar, skemmtun og afþreying verður í boði fyrir alla fjölskylduna. Til að mynda verður keppt í golfi, dansi, badminton og stafsetningu. Fjölskylduhátíðin á Hjalteyri verður haldin á laugardaginn þar sem verður opin pottur, grillveisla og að lokum flugeldasýning. Alls konar mat og annað skemmtilegt má festa kaup á í verðbúðinni þar sem verður svokölluð verðbúðastemning. Austurland Þeir sem eru þyrstir í freyðivín geta til að mynda tekið þátt í freyðivínshlaupinu á hátíðinni Neistaflug sem haldin er í Neskaupstað. Þá verður dorgveiðikeppni, BMX brós sýning og að sjálfsögðu tónleikar þar sem Aron Can, Færibandið og Diljá troða upp. Sprite Zero Klan, Jóhanna Guðrún, Emmsjé Gauti og Nýdönsk mæta á sunnudagskvöld og verður flugeldasýning að loknum tónleikum. Er fleira að gerast um verslunarmannahelgina sem ætti heima í grein eins og þessari? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is Vesturland Sæludagar KFUK og KFUM eru haldnir í Vatnaskógi og þar sem er hreint út pökkuð dagskrá. Til að mynda er klemmustríð, kvöldvaka og krílaföndur auk tónleika með Friðriki Dór og sérstakrar unglingadagskrár. Þá er hæfileikasýning og hægt að fá lánaða báta. Um er að ræða sérstaka fjölskylduhátíð Vestfirðir Þeir sem sakna mýrarboltans sem var áður haldinn á Ísafirði geta lagt leið sína á Nábrókina í Árneshreppi á mýrarboltamótið. Melasystur og hljómsveit hita upp fyrir helgina á föstudagskvöld og spila Flottir Jakkar í félagsheimilinu á laugardagskvöld. Helginni lýkur með varðeldi með Ragga Torfa á sunnudagskvöld. Dalbæjarleikarnir verða haldnir á Snæfjallaströnd þar sem í boði verður skemmtidagskrá með leikjum og þrautum fyrir alla fjölskylduna. Boðið verður upp á kaffihlaðborð og tónleika þar sem fram koma meðal annars Kvæðakórinn, Mítlarnir og Unnur Malín. Íþróttagarparnir geta kíkt til Súðavíkur þar sem Gönguhátíðin í Súðavík fer fram. Hátíðin verður opnuð með hlaðborði og vínveitingum á Melrakkasetrinu. Meðal gönguleiða í ár er ganga upp á Þorfinn í Önundarfirði og Kofra fyrir ofan Súðavík. Fréttin hefur verið uppfærð. Ferðalög Verslunarmannahelgin Þjóðhátíð í Eyjum Innipúkinn Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira
Er fleira að gerast um verslunarmannahelgina sem ætti heima í grein eins og þessari? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is
Ferðalög Verslunarmannahelgin Þjóðhátíð í Eyjum Innipúkinn Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira