Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 28. júlí 2026 11:06 Hildur til vinstri að raka hárið og til hægri með fjölskyldunni á góðri stundu í kringum jólin. Tíu ár eru liðin síðan Hildur Björnsdóttir borgarstjóri greindist með eitlakrabbamein, aðeins sjö dögum eftir fæðingu dóttur sinnar. Krabbameinið hafi sýnt henni hvað tíminn sé naumur og verðmætur. Hún hafi valið að lifa lífinu til fulls síðasta áratuginn, framkvæma það sem hræði hana og leyfa draumum sínum að rætast.
Hildur greindi frá þessu í Facebook-færslu síðdegis í gær en þá voru akkúrat tíu ár upp á dag síðan hún greindist, 27. júlí 2026. „Í dag eru ákveðin tímamót í mínu lífi. Fyrir nákvæmlega tíu árum greindist ég með 16 cm æxli í miðmæti sem reyndist eitlakrabbamein, aðeins sjö dögum eftir fæðingu dóttur minnar. Það var óneitanlega áfall en ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu - læra af reynslunni en láta hana ekki skilgreina mig,“ skrifar Hildur. Hún hafi almennt verið bæði jákvæð og bjartsýn en líka stundum hrædd og óttaslegin. „Í þessum ótta lá þó mikilvægasti lærdómurinn - hvað tíminn sem við eigum er naumur og verðmætur - og hvað það er sem maður raunverulega lifir fyrir.“ „Þegar ég lá ein í gluggalausu herbergi á bráðamóttökunni 27. júlí 2016 og fékk þau tíðindi að ég væri með eitlakrabbamein - hefði ég aldrei getað ímyndað mér hvernig líf mitt myndi þróast þau tíu ár sem fylgdu á eftir,“ skrifar hún. „Síðasta áratug hef ég valið að lifa lífinu algjörlega til fulls. Upplifa dagana með opin augu. Framkvæma það sem hræðir mig og leyfa draumum mínum að rætast. Ekki seinna, heldur strax,“ skrifar hún. „Að vera fjögurra barna móðir og borgarstjóri Reykjavíkur veitir mér meiri hamingju og tilgang en ég hefði nokkru sinni geta beðið um. Í ofanálag er ég gift besta manninum. Lífið er núna - og það hefur aldrei verið betra.“
Krabbamein Tímamót Borgarstjórn Reykjavík Tengdar fréttir Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri Reykjavíkur í gær en hún hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík síðustu fjögur ár og borgarfulltrúi flokksins síðan 2018. Það er þó ýmislegt sem ekki allir vita um nýja borgarstjórann sem á fjögur börn, er með þrjár háskólagráður og ber sérkennilegt gælunafn. 3. júní 2026 07:00 Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Risastór tappakollur í fallegri íbúð Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Fleiri fréttir Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna Sjá meira
Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri Reykjavíkur í gær en hún hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík síðustu fjögur ár og borgarfulltrúi flokksins síðan 2018. Það er þó ýmislegt sem ekki allir vita um nýja borgarstjórann sem á fjögur börn, er með þrjár háskólagráður og ber sérkennilegt gælunafn. 3. júní 2026 07:00