Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. júlí 2026 16:57 Hér má sjá flak bílsins úr nokkurri fjarlægð ásamt einingu sem var ofan á bílnum. aðsend Fjölskylda á ferðalagi um Vestfirði reiknaði með því versta þegar hún horfði á bíl velta niður hlíðar Bolafjalls um þrjúleytið í dag. Þau trúðu ekki sínum eigin augum þegar þau sáu konu skríða út úr bílflakinu sem var í algjörri klessu. Ótrúlegt en satt er konan aðeins slösuð á handlegg. „
Við ætluðum að keyra upp fjallið og sáum að það voru fjórir bílar á leiðinni upp,“ segir Erika Björg Richardsdóttir. Hún var á flakki með móður sinni Ágústu og bróður sínum Jóni Steinari þegar atvikið varð. „Þessi bíll var fremstur,“ segir Erika og Jón Steinar telur að bíllinn hafi líklega verið Duster eða Jimmy-jepplingur og með einingu á þakinu. Þau geta ekki fullyrt hvað gerðist en telja líklegast að hjól hafi farið út af veginum og í framhaldinu hafi bíllinn fylgt í heild sinni. Þau sáu fyrst eininguna af þakinu falla niður og bílinn í kjölfarið velta niður fjallið, hring eftir hring. Skreið út úr flakinu Erika segir þau hafa hringt í lögregluna á meðan þau horfðu á bílveltuna sem tók nokkurn tíma enda fallið mikið. „Bíllinn rúllar í marga marga hringi áður en hann klessir á risastein og stoppar,“ segir Erika. Við tók stutt bið áður en þau sáu hreyfingu. Manneskja skreið út úr bílflakinu. „Við erum rosalega glöð að heyra að það var bara ein manneskja. Við vorum að vona að það væru ekki fleiri þarna inni,“ segir Erika. Viðbragðsaðilar hafi komið á svæðið eftir um tuttugu mínútur en litlu fyrr hefði kona sem var að hlaupa niður fjallið komist að konunni. „Það var svolítið erfitt að komast að henni,“ segir Jón Steinar. Hættu við ferðina Fjölskyldan hafði ætlað upp á Bolafjall eftir að hafa heyrt af vinsælum útsýnispalli á toppi fjallsins. Eftir að hafa orðið vitni að ósköpunum ákváðu þau að sleppa því að keyra upp á fjallið og nýta daginn í annað. „Við hættum við að fara upp eftir þetta.“ Myndin sem fylgir fréttinni er tekin úr nokkurri fjarlægð og aðeins augnablikum eftir slysið. Hún var tekin að ósk lögreglunnar og er meðal gagna málsins. „Maður hefur aldrei séð svona margar veltur. Það er kraftaverk að einhver hafi verið á lífi,“ segir Ágústa. „Við héldum að það væri ekki séns að lifa þetta af,“ bætir Jón Steinar við. „Við trúðum því ekki þegar við sáum hreyfingu í bílnum,“ segir Erika.
Samgönguslys Lögreglumál Bolungarvík Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Sjá meira