Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar 31. júlí 2026 08:02 Ég væri ekki lengi að fá falleinkunn í skóla ef ég skrifaði niðurstöðuna áður en ég opnaði bók eða kynnti mér heimildir. Þess vegna er kennt í öllum skólum landsins að opna bókina, kanna staðreyndir, fá gögnin, lesa gögnin og greina þau síðan. Og fyrst eftir þá vinnu, ætti ég að mynda mér endanlega skoðun. Ég ætti alls ekki að gera þetta í öfugri röð. Samt er ákveðinn hluti landsmanna núna mjög upptekinn af því að gera nákvæmlega það sem öllum íslenskum nemendum er kennt að gera ekki. Að ákveða niðurstöðu fyrirfram. Þann 29. ágúst verður ekki kosið um hvort Ísland gangi í Evrópusambandið. Þá verður aðeins kosið um hvort taka eigi upp viðræður. Já í þessari atkvæðagreiðslu er ekki endanlegt já við aðild. Þetta er já við því að afla upplýsinga. Já sem varðveitir bæði framtíðar já-ið og framtíðar nei-ið. Já til að sjá. Andstæða þess, er að neita að leita sér upplýsinga. Að dæma áður en maður veit. Það er ákvörðun um að vita ekki. Að neita að leita. Orðið fordómar merkir í grunninn að dæma fyrir fram. Að fella dóm áður en staðreyndir liggja fyrir. Við notum orðið fordómar yfirleitt um afstöðu til fólks, en hugsunarhátturinn getur birst víðar. Hann birtist þegar við ákveðum að eitthvað sé ómögulegt, hættulegt eða óæskilegt áður en við höfum kannað það. Það er einmitt það sem nei við viðræðum felur í sér. Nei-sinnar halda því fram að samningurinn verði ómögulegur. En það er enginn samningur kominn. Þeir segja að við fáum ekki ásættanlega niðurstöðu. En við höfum ekki reynt að semja um einhverja niðurstöðu. Hinir neikvæðu segja að Íslandi verði ekki mætt af skilningi. En þau vilja samt ekki láta á það reyna. Þetta er eins og að ákveða að skila jólagjöf áður en hún er opnuð. Eða hafna íbúðakaupum af því að maður hefur ákveðið fyrirfram að seljandinn muni aldrei samþykkja tilboðið. Hvað er eiginlega svona hættulegt við að fá samninginn á borðið? Andstæðingar áframhaldandi viðræðna tala mikið um fullveldi. Eins og það sé viðkvæmt postulín sem geti brotnað við það eitt að setjast niður við samningaborð. Ég sé fullveldi öðruvísi. Fullvalda þjóð þarf ekki að óttast viðræður. Hún fer inn í þær með skýr markmið og setur fram kröfur. Hún ver hagsmuni sína. Eins og allar aðildarþjóðir Evrópusambandsins hafa gert og eru mjög ánægðar með. Veik þjóð forðast hins vegar samtalið vegna þess að hún treystir sér ekki til að taka þátt í því. Sterk þjóð lætur reyna á samningsstöðu sína. Íslendingar hafa oft áður samið um hagsmuni sína, s.s. landhelgi, sjávarútveg og varnarsamstarf, EES-samninginn og fríverslun og ótal aðra þjóðarhagsmuni. Okkur hefur aldrei fundist það niðurlægjandi að semja þegar okkur hentaði að semja. Okkar kynslóð á skilið raunverulegt val Fyrir fólk á mínum aldri er Evrópa ekki brennandi hús eða efnahagslegt eyðiland. Evrópa er staðurinn þar sem við lærum, ferðumst, vinnum og eignumst vini. Við njótum Evrópu. Evrópskar ákvarðanir hafa nú þegar áhrif á réttindi okkar og tækifæri, á loftslagsmál og tækni, viðskipti og öryggi, hvort sem Ísland er innan sambandsins eða utan. Í gegnum EES-samninginn tökum við nú þegar upp stóran hluta regluverks Evrópusambandsins. Stóra spurningin er því ekki hvort við viljum tengjast Evrópu. Við erum fyrir löngu tengd henni. Spurningin er hvaða stöðu við viljum hafa innan þess samstarfs. Viljum við halda áfram að innleiða fjölda ákvarðana en hafa takmarkaða aðkomu að mótun þeirra? Eða gæti full aðild, með sæti við borðið, atkvæðisrétti og áhrifum, þjónað hagsmunum okkar betur? Gæti kannski stöðugri gjaldmiðill sem er með þrisvar sinnum lægri vexti en hin fullreynda króna, jafnvel hentað íslenskum almenningi og fyrirtækjum betur? Jafnvel þau sem eru efins um aðild hljóta að geta tekið undir að þessi spurning verður ekki leyst með hræðsluorðum og tilgátum, eða gömlum slagorðum þeirra sem hafa alltaf óttast erlent samstarf og iðulega haft rangt fyrir sér í þeim efnum. Að loka bókinni áður en fyrsti kaflinn er lesinn Nei-sinnar geta sett fram alls konar ástæður fyrir afstöðu sinni. Þeir geta talað um sjávarútveg, landbúnað, fullveldi eða efnahagsmál. Þetta eru allt lögmæt umræðuefni og þau eiga að vera rædd og tekin alvarlega. En þetta eru rök fyrir því að semja vel. Þetta eru ekki rök fyrir því að neita að semja. Við getum ekki komist að því, hvað Íslandi býðst með því að sitja heima og giska. Við getum ekki fengið lausnir með því að biðja ekki um þær. Við getum ekki metið samning sem við neitum að láta gera. Við getum ekki kallað það upplýsta ákvörðun að loka bókinni áður en við lesum fyrsta kaflann. Þann 29. ágúst stöndum við því frammi fyrir vali milli upplýsinga og ágiskana. Milli forvitni og fordóma. Milli þess að treysta þjóðinni fyrir endanlegri ákvörðun og þess að ákveða að þjóðin megi aldrei sjá hvað hún gæti fengið að velja um. Ég segi því já til að sjá þann 29. ágúst vegna þess að ég vil sjá hvað gæti leynst á bak við dyrnar og tekið endanlega ákvörðun þegar svörin liggja fyrir. Að neita að leita þann 29. ágúst er hins vegar miklu stærri og afdrifaríkari ákvörðun sem lokar dyrum. Ég vona því að allar kynslóðir þessa lands ákveði ekki að loka þessum dyrum fyrir okkur sem yngri erum. Höfundur er verkfræðinemi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun