Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 31. júlí 2026 12:18 Forstjóri Landhelgisgæslunnar, Georg Kr. Lárursson, segir skipstjóra Bandero hafa neitað að hlýða fyrirmælum. Vísir/Einar Skipstjóri Bandero neitaði fyrirmælum Landhelgisgæslunnar um að stöðva skipið, svara í talstöð og senda frá sér staðsetningarmerki og sendi gæslan því varðskipið Freyju og þyrlu á vettvang. Á mögnuðu myndbandi sem var tekið um borð í Bandero má sjá þegar smábátar elta skipið uppi og sérsveitarmenn klifra um borð. „
Uppfærslan sem við fengum er að Freyja sendi þrjá báta til viðbótar til okkar. Þeir höfðu samband við Bandero um að þeir vildu fara um borð. Við erum um fjórum til fimm mílum frá alþjóðlegum hafsvæðum en við höldum að þeir muni samt elta okkur áfram,“ má heyra einn skipverjann segja í myndbandinu hér að neðan. „Þú getur enn séð Freyju í fjarska en þessir tveir nýju bátar sem eru á eftir okkur, þeir komu þaðan,“ segir hann svo og bætir við: „Þau höfðu samband og sögðust ætla að fara um borð. Við erum stödd þar núna og það er mjög mikið af fólki um borð.“ Klippa: Eftirför Gæslunnar og augnablikið þegar farið var um borð Meðan bátar Landhelgisgæslunnar og sérsveitarinnar færast nær í myndbandinu lýsir skipverjinn því hvers vegna verið er að elta skipið. „Þau eru að elta okkur af því að fyrr í dag þá fældum við Kristján Loftsson út úr hvalveiðimiðunum. Hvalur 9 yfirgaf þau og við lentum í beinum átökum við þá. Strax í kjölfarið sendi Landhelgisgæslan þyrlur, varðskip og smábáta á eftir okkur og þau hafa verið að elta okkur í marga klukkutíma.“ Á síðustu mínútu myndbandsins má síðan sjá sérsveitina komast um borð með krókum og stigum. Sjón er sögu ríkari. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, ræddi eftirförina við fréttamann Sýnar og sagði skipverja Bandero ekki hafa hlýtt þeim fyrirmælum sem Landhelgisgæslan beindi til þeirra. „Skipstjóri Bandero þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum, margítrekuðum, um að stöðva skipið, svara í talstöð, senda frá sér staðsetningarmerki, sem hann gerði ekki fyrr en hann var kominn út fyrir tólf mílurnar Sjá einnig: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ „Skipið Bandero sló ekkert af ferð, sigldu fulla ferð fimmtán mílur til hafs. Við þær aðstæður þurftu þessir vösku séraðgerðar- og sérsveitarmenn að príla um borð í skipið. Það má segja að það hafi verið lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi,“ sagði Georg jafnframt.
Landhelgisgæslan Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalir Hvalveiðar Lögreglumál Tengdar fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, í kvöld og tóku yfir stjórn skipsins. Skipstjóri þess var handtekinn. 30. júlí 2026 23:32 Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Paul Watson hvalaverndunarsinni hvers skip, Bandero, stefndi í dag að hvalveiðiskipinu Hval 9 þannig að Landhelgisgæslan greip inn í, segir að honum sé sama þó áhöfn skips hans yrði handtekin og réttað yfir þeim hér á landi. Slíkt myndi einungis auka athyglina á málefninu sem hann berst fyrir. 30. júlí 2026 22:43 Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira
Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, í kvöld og tóku yfir stjórn skipsins. Skipstjóri þess var handtekinn. 30. júlí 2026 23:32
Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Paul Watson hvalaverndunarsinni hvers skip, Bandero, stefndi í dag að hvalveiðiskipinu Hval 9 þannig að Landhelgisgæslan greip inn í, segir að honum sé sama þó áhöfn skips hans yrði handtekin og réttað yfir þeim hér á landi. Slíkt myndi einungis auka athyglina á málefninu sem hann berst fyrir. 30. júlí 2026 22:43