Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Eiður Þór Árnason og Agnar Már Másson skrifa 2. ágúst 2026 09:01 Mikill fjöldi var á Akureyrarvelli í gærkvöld. Vísir/Viktor Freyr Níu voru handteknir og einn vistaður í fangageymslu vegna vopnalagabrots á tónleikasvæði á Akureyrarvelli í gærkvöld. Fjórir voru handteknir í bænum vegna minniháttar fíkniefnalagabrots og einn þeirra vistaður í fangageymslu. Einnig var tilkynnt um stórfellda líkamsárás þar sem einstaklingur endaði með beinbrot í andliti.
Mikill erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra síðastliðinn sólarhring en fjöldi fólks er á Akureyri þar sem bæjarhátíðin Ein með öllu fer fram um verslunarmannahelgina. Vopnalagabrotið er til rannsóknar en samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra á Akureyri var einungis um eitt eggvopn að ræða. Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu í aðgerðinni. „Í aðgerðinni sjálfri eru níu alls handteknir. Einn af þeim er svo tekinn í frekari skoðun og endar á því að við þurfum að vista hann vegna málsins. Hinum átta var bara sleppt á staðnum,“ segir Andri Freyr Sveinsson varðstjóri. Enginn hinna handteknu sé undir lögaldri. Þurft að tryggja aðstæður „Við höfðum þarna vitneskju um að það væri hugsanlegt eggvopn í þessum hópi. Í gærkvöldi er gríðarlegur fjöldi fólks kominn saman á fjölskylduhátíð og þá voru aðstæður þannig að við ákváðum að fara í aðgerðir til að sannreyna þessar upplýsingar. Þessi rannsókn leiddi til þess að það fannst eggvopn á einum þeirra sem er svo handtekinn vegna málsins.“ „Þetta er bara þannig mál að við þurfum oft að tryggja aðstæður og þess vegna eru þessir átta aðrir handteknir,“ bætir Andri við. Nokkur fjöldi fólks er á Akureyri. Vísir Lögreglan á Akureyri vinni náið með sérsveit ríkislögreglustjóra og menn á þeirra vegum hafi verið á vakt í gær. „Þeir eru með gríðarlega þekkingu á öllum svona vopnamálum og við nutum liðsinnis frá þeim sem er bara eðlilegt í svona málum. Þeir voru ekkert kallaðir neitt sérstaklega út, þeir eru þarna á vakt og koma með okkur í þetta mál.“ Líkamsárás á Akureyri en engin mál á Siglufirði Ein stórfelld líkamsárás sem tilkynnt var undir morgun er til rannsóknar hjá lögregluembættinu. Enginn hefur verið handtekinn vegna hennar en brotaþoli var fluttur á sjúkrahús. „Þar kom í ljós að hann var með beinbrot í andliti og var með höfuðáverka eftir slagsmál,“ segir Andri. „Þegar lögreglan kemur á vettvang er gerandi farinn. Niðurstaðan var sú að við vorum ekki með upplýsingar um geranda þannig að það er eitthvað sem rannsóknardeild embættisins þarf að skoða.“ Tveir í fangageymslu vegna ölvunar á almannafæri Þá komu upp átta mál hjá lögregluembættinu vegna ölvunar eða vímuástands síðastliðinn sólarhring og gistu tveir í fangageymslu vegna þessa. Í fimm tilvikum voru afskipti höfð af börnum sem voru ekki talin vera í nógu góðu ástandi. Þau mál voru unnin í samráði við foreldra og barnavernd. Tíu umferðarlagabrot eru skráð hjá embættinu síðastliðinn sólarhring en ekkert tilfelli kom upp þar sem grunur var um akstur undir áhrifum vímugjafa. Síldarævintýrið á Siglufirði fer fram um helgina. Vísir/Egill Engin mál á Siglufirði Engin mál eru skráð hjá lögreglunni á Siglufirði þar sem bæjarhátíðin Síldarævintýrið á Siglufirði fer fram. Alls voru skráð 83 mál hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra síðastliðinn sólarhring. „Við bættum í fjölda lögreglumanna fyrir þessa helgi. Ég vil meina að við hefðum lent í vandræðum ef við hefðum ekki verið jafn mörg og við vorum. Þetta eru bara alls konar mál sem komu upp sem má titla sem minniháttar en geta tekið alveg smá tíma að leysa úr,“ segir Andri Freyr Sveinsson, varðstjóri á Akureyri. Fréttin hefur verið uppfærð.
Akureyri Lögreglumál Verslunarmannahelgin Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Flugvél fór út af brautinni á Hólmsheiði Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Sjá meira