Innlent

Grunaður um sölu fíkni­efna á Þjóð­há­tíð

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Mikill fjöldi sækir Þjóðhátíð í ár, líkt og fyrri ár.
Mikill fjöldi sækir Þjóðhátíð í ár, líkt og fyrri ár. Vísir/Smári

Talsverður fjöldi skemmti sér í Heimaey í gærkvöldi og nótt en veðrið hefur leikið við Þjóðhátíðargesti.

Í tilkynningu Lögreglunnar í Vestmannaeyjum kemur fram að upp hafi komið níu fíkniefnamál í nótt. Þar á meðal er eitt mál þar sem grunur er um sölu fíkniefna og hefur lögregla tekið málið til frekari rannsóknar.

Tilkynnt var um tvær minniháttar líkamsárásir auk þess sem ýmis ölvunartengd verkefni komu til kasta lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×