Körfubolti

Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslensku stelpurnar náðu strax undirtökunum gegn Portúgal og slakaði ekkert á klónni eftir það. 
Íslensku stelpurnar náðu strax undirtökunum gegn Portúgal og slakaði ekkert á klónni eftir það.  kkí

Eftir tap fyrir heimaliði Rúmeníu, 73-100, í fyrsta leik í B-deild Evrópumótsins í körfubolta í gær vann íslenska U-18 ára landslið kvenna góðan sigur á Portúgal í dag, 70-91. Rebekka Rut Steingrímsdóttir fór mikinn í leiknum.

Íslenska liðið var mun sterkari aðilinn í leiknum og leiddi allan tímann. Strax eftir 1. leikhluta munaði fimmtán stigum á liðunum, 15-28, og í hálfleik skildu nítján stig þau að, 31-50.

Íslensku stelpurnar gáfu ekkert eftir í seinni hálfleik og uppskáru á endanum 21 stigs sigur, 70-91.

Rebekka skoraði 31 stig í leiknum, tók tíu fráköst, gaf fjórar stoðsendingar og stal boltanum átta sinnum. Hún hitti aðeins úr fimm af tuttugu skotum sínum en skoraði nítján stig af vítalínunni, fjórum stigum meira en allt portúgalska liðið.

Sara Björk Logadóttir skoraði fimmtán stig, Kristín Björk Guðjónsdóttir þrettán og samherji þeirra í Íslandsmeistaraliði Njarðvíkur, Hulda María Agnarsdóttir, skilaði ellefu stigum, átta fráköstum og sex stoðsendingum.

Næsti leikur Íslands er gegn Hollandi á þriðjudaginn og á miðvikudaginn mæta Íslendingar Aserum í lokaleik sínum í A-riðli. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×