Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Sigurgeir Þorkelsson skrifar 3. ágúst 2026 10:23 Mikill fjöldi skemmti sér yfir helgina á Þjóðhátíð. Vísir/Smári Fimm gista fangageymslur í Vestmannaeyjum eftir atburði næturinnar en ráðist var að tveimur mönnum við skyldustörf. Í tilkynningu frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum segir að gestir séu farnir að tínast frá eynni í blíðskaparveðri.
Lögregla hafði í ýmis horn að líta í gærkvöldi og nótt. Upp komu fimm fíkniefnamál, tilkynntar voru tvær líkamsárásir, sparkað var í lögreglumann við skyldustörf og sjúkraflutningamaður sleginn. Það þarf því ekki að koma á óvart að fimm gistu fangageymslur í nótt. „Við erum að eiga við fólk í alls konar ástandi,“ segir Stefán Jónsson yfirlögregluþjónn. Líkamsárásirnar teljast ekki alvarlegar, að svo stöddu, en Stefán undirstrikar að ekki sé búið að ræða við hlutaðeigandi, hvorki þolendur né gerendur. „Þetta skýrist þegar líður á daginn. Við eigum eftir að tala við þá sem koma að máli.“ Njóta aðstoðar „frá fastalandinu“ Lögreglunni berst liðsauki til Eyja yfir þessa einstaklega annasömu helgi. Síðan eru um eitt hundrað manns í gæslu þegar mest er. „Það léttir undir með okkur. Þau bæði hafa afskipti og afgreiða fullt af minniháttar málum,“ nefnir Stefán. „Það má alveg hrósa gæslunni. Hún er öflug – sýnileg og flott.“ Stefán er á heildina ánægður með helgina. „Vissulega koma upp mál sem við erum ekki ánægð með, en það eru margir að skemmta sér og heilt yfir erum við mjög sátt.“ Það vantar ekki upp á gestrisnina í Vestmannaeyjum. „Við bara gefum okkar gestum toppeinkunn,“ segir Stefán. „Það er líka búið að vera svo gott veður, það hjálpar.“
Verslunarmannahelgin Þjóðhátíð í Eyjum Lögreglumál Vestmannaeyjar Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sjá meira