Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Áróra L Davíðsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 09:26 Á Akureyri mældist heildarúrkoma mánaðarins aðeins 25 prósent af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Vísir/Vilhelm Júlímánuður var óvenju úrkomusamur á suðvestur- og vesturhluta landsins, sérstaklega um miðjan mánuð, en óvenju þurr á Norðaustur- og Austurlandi. Í ár var blautasti júlímánuður í rúm 40 ár í Reykjavík en einn sá hlýjasti á Austfjörðum.
Á vef Veðurstofu Íslands segir að í Reykjavík hafi mælst tvöfalt meiri úrkoma en meðalúrkoma í júlí árin 1991 til 2020. Síðast mældist eins mikil rigning í Reykjavík árið 1984, eða fyrir 42 árum. Dagar sem úrkoma mældist meiri en 1,0 mm voru sextán talsins í Reykjavík, eða sex fleiri en á meðalári. Aðeins fjórum sinnum áður hefur mælst eins mikil úrkoma í Reykjavík í júlímánuði og í ár, síðast árið 1984. Vísir/Vilhelm Hins vegar hefur júlímánuður aðeins mælst jafn úrkomulítill á Akureyri einu sinni frá upphafi mælinga, árið 1929. Var þetta því þurrasti júlímánuður á Akureyri í 97 ár. Rigningardagar voru fimm færri en á meðalári á Akureyri. Á Dalatanga á milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar mældist einn slíkur úrkomudagur í júlí en þeir eru tíu á meðalári. Júlímánuður var því sá þurrasti frá upphafi mælinga, sem hófust á svæðinu árið 1938. Hitamet slegin víða á Austurlandi Óvenju hlýtt var á Austurlandi í júlí og var mánuðurinn ýmist víða sá hlýjasti eða á meðal hlýjustu júlímánaða sem vitað er um. Mánuðurinn var hlýjasti júlímánuðurinn frá upphafi mælinga á Teigarhorni og á Dalatanga en á Teigarhorni var meðalhiti 11,6 gráður en fyrra met voru ellefu gráður frá árinu fyrir hundrað árum, árið 1926. Einnig mældist júlímánuður sá hlýjasti á sjálfvirkum veðurstöðvum í Neskaupstað, Seyðisfirði, Kollaleiru í Reyðarfirði og Eskifirði. Á Egilsstöðum mældist meðalhitinn í júlí 13,2 gráður sem er fjórði hlýjasti júlímánuður frá upphafi mælinga. Þar mældust 20 stig eða meira fimmtán daga mánaðarins, þar af fjórtán þeirra samfellt frá 11. til 23. júlí. Hitamet júlímánaðar voru slegin víða á Austfjörðum í ár, meðal annars á Eskifirði. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Það sé mjög sjaldgæft að slíkt gerist hér á landi á einni og sömu stöðinni svo marga daga í röð. Á sama tímabili hafi hitamet fyrir júlímánuð verið slegin á nokkrum veðurstöðvum á Austur- og Suðausturlandi. Hæsti hiti mánaðarins hafi mælst 28 stig á Seyðisfirði þann 15. júlí. Hlé á blíðunni í bili Kristín Hermannsdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að á næstu dögum megi búast við vætu í flestum landshlutum en þó sé hægt að gera ráð fyrir einhverjum sumardögum í framhaldinu. „Það er að koma svolítil bleyta til okkar á fimmtudag og föstudag. Við erum svona aðeins að detta úr þessum gír sem við höfum verið í síðustu daga. Eftir fimmtudag og föstudag eru spárnar svona dálítið út og suður og erfitt að spá í framhaldið,“ segir Kristín. Er sumarið nokkuð búið hjá okkur? „Það geta alltaf komið góðir dagar fram í september og október þannig að ég myndi ekki alveg drepa það strax. Það koma alveg örugglega einhverjir góðir sumardagar áfram en í bili myndi ég segja að það væri komið smá hlé í blíðunni sem er búin að vera hér,“ segir Kristín.
Veður Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Sjá meira