Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Árni Sæberg og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 5. ágúst 2026 14:00 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, er einnig settur innviðaráðherra. Vísir/Lýður Valberg Starfandi innviðaráðherra, Inga Sæland hefur aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili með breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að með breytingunni sé aflamark þorsks til strandveiða aukið um 964 tonn, úr 13.350 tonnum í 14.314 tonn. Með þessu nemi heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 15.664 tonnum árið 2026. Önnur aukningin í sumar Þetta er í annað sinn í sumar sem innviðaráðherra tilkynnir um aukningu strandveiðiafla. Í júní var aflamark þorsks hækkað um 2.700 tonn. Í tilkynningu segir að aukningin eigi rætur að rekja til niðurstöðu skiptimarkaðar með aflaheimildir. Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða séu 5,3 prósent af leyfðum heildarafla í hverri tegund dregin frá og þeim aflaheimildum ráðstafað til tiltekinna úrræða, þar á meðal strandveiða, byggðakvóta, línuívilnunar og fleira. Meira en reiknað var með Tegundasamsetning þess afla sem dreginn er frá svari ekki alltaf til þeirra tegunda sem úrræðin kalla á og ráðherra sé því heimilt að skipta aflamagninu í aðrar tegundir á skiptimarkaði.Niðurstaða skiptimarkaðarins hafi skilað meiri þorskaflaheimildum en gert var ráð fyrir í fyrri áætlun og viðbótin nemi tæpum 964 tonnum af óslægðum þorski. „Stórkostlegur áfangasigur“ Inga segir í samtali við fréttastofu að tæplega 1000 tonna aukning strandveiðipottsins sé stórkostlegur áfangasigur fyrir sjávarpláss landsins og strandveiðimenn. „Þetta er náttúrulega eitt helsta baráttumál Flokks fólksins. Við lögðum þetta á stjórnarmyndunarborðið á sínum tíma, að reyna að tryggja 48 daga strandveiðar. Það hefur nú hikstað en farið mjög vel af stað. Í fyrra var flotinn kallaður heim í land 12. júlí og nú þegar erum við að verða komin með ríflega mánuð umfram það. Þannig að núna, við eigum enn eftir á fjórða hundrað tonna af þegar útgefnum aflaheimildum og nú bætum við tæplega þúsund tonnum við. Þannig að vonir standa til þess að við náum hátt í 48 daga.“ Ólánskerfi Nú eigi eftir að koma í ljós hversu vel muni ganga að ná í þessi tæplega 1400 tonn sem eftir eru í pottinum en það fari eftir aflagæftum og öðru slíku. „En vertíðin er stórkostleg. Þetta er langöflugasta strandveiðivertíð frá upphafi þessa ólánskerfis, eins og ég vil kalla þetta kerfi. Þetta er mesta aflaverðmæti sem nokkurn tímann hefur verið greitt fyrir aflann okkar. Við erum að fá hér að meðaltali vel yfir 600 krónur fyrir kílóið, meira og minna í allt sumar og í gær sem dæmi þá var kílóið á markaðnum af óslægðum þorski um 684 krónur.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Strandveiðar Sjávarútvegur Flokkur fólksins Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Sjá meira