Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 6. ágúst 2026 07:01 Þegar rætt er um ESB snýst umræðan gjarnan um sjávarútveg, landbúnað eða vexti. En skoðum aðeins í þessari grein við hvaða aðstæður verslunin á Íslandi býr. Þegar fyrirtæki búa við góð rekstrarskilyrði verða þau samkeppnishæfari. Þau geta fjárfest meira, boðið betri þjónustu og lægra verð. Þess vegna er samkeppnishæfni ekki aðeins hagsmunamál fyrirtækja. Hún er líka hagsmunamál allra heimila. Íslensk verslun býr við mun hærri fjármagnskostnað en almennt í Evrópu. Hún býr við meiri gengisáhættu og Ísland stendur utan tollabandalags ESB. Allt þetta eykur kostnað fyrirtækja og dregið úr samkeppnishæfni þeirra gagnvart erlendum keppinautum. Allur aukakostnaður skilar sér í hærra verði til neytenda eða minna vöruúrvali og verri þjónustu. Eigum við ekki að nýta tækifærið núna til að athuga hvort við getum skapa íslenskum fyrirtækjum sambærileg rekstrarskilyrði og helstu samkeppnisþjóðir okkar? Netverslun breytir leikreglunum Á síðustu árum hefur netverslun breytt verslun um allan heim. Í dag getur íslenskt heimili keypt vörur frá fyrirtækjum hinum megin á hnettinum með nokkrum smellum. Þessi þróun mun halda áfram hvort sem okkur líkar betur eða verr. Við þurfum að finna leiðir til að tryggja íslenskri verslun bestu samkeppnisskilyrði. Ísland getur ekki mótað leikreglur alþjóðlegrar netverslunar. Þegar kemur að stafrænum mörkuðum, stórum netmarkaðstorgum og alþjóðlegri samkeppni hafa stærri efnahagsheildir mun meira vægi. ESB hefur þegar sett umfangsmiklar reglur um stafræna markaði, neytendavernd og samkeppni og vinnur áfram að því að laga regluverkið að síbreytilegri netverslun. Eigum við ekki að skoða hvort við getum bætt okkar stöðu með því að vera aðilar að bandalagi sem hefur burði til að setja lög og reglur um samkeppnishæft umhverfi á alþjóðamarkaði? EES-samningurinn hefur verið Íslandi afar mikilvægur. En heimurinn er að breytast hratt. Þannig að EES samningurinn dugir líklega ekki mikið lengur. Við erum t.d. ekki aðilar að tollabandalagi Evrópusambandsins. Við eigum heldur ekki sæti við borðið þegar reglur um atvinnulífið eru mótaðar. Eigum við ekki að kanna hvort Ísland geti tryggt fyrirtækjum sínum enn betri samkeppnisskilyrði til næstu 30 til 50 ára? Hvernig er staða Íslands í alþjóðlegum viðskiptum? Ef íslensk verslun og íslensk fyrirtæki fengju sambærileg rekstrarskilyrði og fyrirtæki í Danmörku, Hollandi eða Finnlandi – hverjir myndu hagnast mest? Fyrirtækin eða íslensk heimili? Þegar fyrirtæki verða samkeppnishæfari skapast fleiri verðmæt störf. Þegar verðmætasköpun vex styrkist samfélagið. Þegar samkeppni eykst njóta neytendur yfirleitt lægra verðs, meira vöruúrvals og betri þjónustu. Markmiðið samkeppnishæfi er að íslenskir neytendur njóti betri lífskjara. Hugleiðum þetta saman Það er alveg ljóst að aðild að ESB leysir ekki sjálfkrafa stöðuna sem við erum í. Mun EES samningurinn duga Íslandi til framtíðar? Öll verslun breytist mjög hratt núna. Netverslun mun vaxa enn meir. Samkeppnin harðnar og samræmdar reglur alþjóðaviðskipta verða sífellt mikilvægari. Spyrjum: Þurfum við ekki að skapa íslenskum fyrirtækjum bestu samkeppnisskilyrði sem okkur standa til boða? Eigum við að kanna hvort full aðild að ESB geti skapað enn betri rekstrarskilyrði fyrir fyrirtæki, heimili og samfélagið allt? Ég tel að við verðum að fá samning til að geta af yfirvegun farið yfir alla kosti sem við eigum. Þjóðin hefur góða þekkingu og lætur ekki plata sig. Við getum því verið óhrædd þegar við fáum raunverulegan samning til að meta kosti og galla. Þá velur þjóðin þá leið sem hún telur þjóna hagsmunum komandi kynslóða best. Höfundur er viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar