Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2026 18:05 Dagbjartur Sigurbrandsson fagnar hér sigri á Íslandsmótinu í fyrra. GSÍmyndir Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er með forystu eftir fyrsta daginn á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram á Korpúlfsstöðum í ár en hann vann Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í fyrra.
Dagbjartur lék á 66 höggum í dag eða fimm höggum undir pari. Hann er með tveggja högga forskot eins og staðan er núna en það eru ekki allir búnir að klára fyrsta hringinn. Dagbjartur byrjaði titilvörnina stórkostlega eða með því að ná fimm fuglum á fyrstu sjö holunum og spila fyrri níu á fjórum höggum undir pari. Hann fékk par á fyrstu sjö holunum á seinni níu en náði svo fugli á sautjándu áður en hann paraði lokaholuna. Þegar Dagbjartur kom upp úr klúbbhúsinu var hann með tveggja högga forskot á þá Arnór Tjörva Þórsson og Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur sem spiluðu báðir á 68 höggum eða þremur höggum undir pari. Báðir enduðu þeir mjög vel, Arnór með tvo fugla í röð á fjórtándu og fimmtándu en Tómas með þrjá fugla á fjórum holum frá fjórtándu til sautjándu. Það má fylgjast með stöðu mála hér.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira