Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. ágúst 2026 07:41 Ivanka og Jared voru á Íslandi fyrr í sumar. Ivanka Trump Ivanka Trump, dóttir Donalds Trump Bandaríkjaforseta, hefur birt myndir af ferðalagi fjölskyldu sinnar á Íslandi. Þau dvöldu hér á landi í júní.
Ivanka Trump og Jared Kushner, eiginmaður hennar og ráðgjafi Bandaríkjaforseta, komu í lok júní til Íslands og dvöldu hér í nokkra daga. Fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins staðfesti það og sagði hjónin hér á landi í einkaerindum. Sjá nánar: Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þau lentu á Akureyrarflugvelli og dvöldu á lúxushótelinu Deplum í Fljótum. Þá lögðu þau leið sína um Skagafjörðinn. Miðað við myndirnar sem Ivanka deildi af ferðalaginu fóru þau einnig í fjölskyldumyndatöku í íslenskri náttúru. Myndirnar hafa hlotið töluverða athygli, sumir hrósa fjölskyldunni í hástert á meðan aðrir minna hana á að faðir hennar girnist Grænland en ekki Ísland. Hjónin hafa bæði starfað fyrir föður Ivönku.Ivanka Trump Ivanka er eins og fyrr segir dóttir Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Ivönu Marie Trump, sem lést árið 2022. Kushner hefur starfað sem sérstakur ráðgjafi tengdaföður síns í utanríkismálum og var sá sem kynnti áform Trumps á Gasaströndinni. Saman eiga Ivanka og Jared þrjú börn sem voru með þeim á ferðalaginu, þau Arabella Rose, Joseph Frederick og Theodore James. Saman eiga þau þrjú börn.Ivanka Trump Jared og Ivanka gengu í hjónaband árið 2009.Ivanka Trump
Íslandsvinir Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Össur stendur með sundmönnunum Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist RJ Mitte er látinn Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Lífið Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira