Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar 9. ágúst 2026 06:01 Nú hrannast upp rök þeirra sem vara við Já-til-að-sjá. Þeir benda á að með já-i fari af stað ferli sem erfitt geti reynst að stöðva og endi að lokum með fullri aðild að ESB. Já-sjá verði þannig í reynd Já-já, en ekki Já-nei eða Já-kannski. Skoðum rökin. Fyrst ber að nefna að já í lok ágúst þýðir að þjóðin hefur formlega óskað eftir inngöngu í Evrópusambandið. Samkvæmt gögnum sambandsins tekur þá við umfangsmikið ferli þar sem íslenskt stjórnkerfi og löggjöf eru löguð að 170 þúsund blaðsíðna regluverki ESB. Að laga stjórnkerfi heils ríkis að regluverki 27 ríkja og 450 milljóna manna er ekkert smáverk. Þegar slík aðlögun er komin vel á veg yrði afar erfitt að vinda ofan af henni ef þjóðin vildi síðan bakka út í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni. Dr. Carl Baudenbacher, sérfræðingur í Evrópurétti og fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, hefur nýlega bent á að þær laga- og kerfisbreytingar sem ráðist yrði í eftir fyrra jáið myndu skapa nýja hagsmuni og væntingar, bæði innan stjórnkerfisins og í stjórnmálunum. Ferlið fengi þannig sinn eigin skriðþunga. Pólitískur þrýstingur, bæði frá íslenskum stjórnvöldum og ESB, gæti orðið slíkur að fólki yrði smám saman gert ljóst að nei í seinni kosningunum væri ekki raunhæfur kostur. Evrópa ræður ferðinni Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, hefur einnig bent á að Evrópusambandið vilji forðast að þjóð hafni lokasamningi, enda væri það álitshnekkir fyrir sambandið. Því telur hann líklegt að ESB myndi frekar draga viðræðurnar á langinn þar til nægar líkur væru á já-i í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni. Að öðrum kosti myndi Evrópudambandið láta viðræðurnar smám saman fjara út. Þar sem ESB ræður að miklu leyti ferðinni í aðildarferlinu gæti þetta tekið mörg ár. Segi þjóðin já við aðildarumsókn í lok mánaðarins er því veruleg hætta á að hún komist inn á braut sem erfitt verður að snúa af. Þar kemur óneitanlega upp í hugann Hotel California með Eagles og hin fræga lína: „You can check out any time you like, but you can never leave.“ Höfundur er framhaldsskólakennari Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Nú hrannast upp rök þeirra sem vara við Já-til-að-sjá. Þeir benda á að með já-i fari af stað ferli sem erfitt geti reynst að stöðva og endi að lokum með fullri aðild að ESB. Já-sjá verði þannig í reynd Já-já, en ekki Já-nei eða Já-kannski. Skoðum rökin. Fyrst ber að nefna að já í lok ágúst þýðir að þjóðin hefur formlega óskað eftir inngöngu í Evrópusambandið. Samkvæmt gögnum sambandsins tekur þá við umfangsmikið ferli þar sem íslenskt stjórnkerfi og löggjöf eru löguð að 170 þúsund blaðsíðna regluverki ESB. Að laga stjórnkerfi heils ríkis að regluverki 27 ríkja og 450 milljóna manna er ekkert smáverk. Þegar slík aðlögun er komin vel á veg yrði afar erfitt að vinda ofan af henni ef þjóðin vildi síðan bakka út í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni. Dr. Carl Baudenbacher, sérfræðingur í Evrópurétti og fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, hefur nýlega bent á að þær laga- og kerfisbreytingar sem ráðist yrði í eftir fyrra jáið myndu skapa nýja hagsmuni og væntingar, bæði innan stjórnkerfisins og í stjórnmálunum. Ferlið fengi þannig sinn eigin skriðþunga. Pólitískur þrýstingur, bæði frá íslenskum stjórnvöldum og ESB, gæti orðið slíkur að fólki yrði smám saman gert ljóst að nei í seinni kosningunum væri ekki raunhæfur kostur. Evrópa ræður ferðinni Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, hefur einnig bent á að Evrópusambandið vilji forðast að þjóð hafni lokasamningi, enda væri það álitshnekkir fyrir sambandið. Því telur hann líklegt að ESB myndi frekar draga viðræðurnar á langinn þar til nægar líkur væru á já-i í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni. Að öðrum kosti myndi Evrópudambandið láta viðræðurnar smám saman fjara út. Þar sem ESB ræður að miklu leyti ferðinni í aðildarferlinu gæti þetta tekið mörg ár. Segi þjóðin já við aðildarumsókn í lok mánaðarins er því veruleg hætta á að hún komist inn á braut sem erfitt verður að snúa af. Þar kemur óneitanlega upp í hugann Hotel California með Eagles og hin fræga lína: „You can check out any time you like, but you can never leave.“ Höfundur er framhaldsskólakennari
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar