Minning Jorge Messi heiðruð víða um heim Aron Guðmundsson skrifar 9. ágúst 2026 11:32 Rodrigo de Paul í treyju Messi eftir að hafa skorað fyrir Inter Miami í nótt Vísir/Getty Minning Jorge Messi var heiðruð fyrir leik Inter Miami í Bandaríkjunum í nótt. Sonur hans, Lionel Messi, var af skiljanlegum ástæðum fjarverandi í leiknum en Jorge lét lífið á föstudaginn síðastliðinn eftir langvinn veikindi.
Mínútuþögn var fyrir leikinn og báru leikmenn beggja liða sorgarbönd. Nafn Jorge Messi birtist síðan á stórum skjám á vellinum. Inter Miami bætti við svörtum borða á prófílmynd sína á samfélagsmiðlum og í yfirlýsingu frá félaginu sagði: „Hugur okkar er hjá fyrirliða okkar, Leo, og allri Messi fjölskyldunni. Liðsfélagi Messi hjá bæði Inter Miami og argentínska landsliðinu, Rodrigo de Paul skoraði fyrsta mark leiksins, sem endaði með 2-1 sigri Monterrey, of fagnaði með því að fara úr treyju sinni þar sem við blasti treyja Messi. Rodrigo De Paul strikes from distance for the opener and honors his friend Leo Messi and his family ❤️ pic.twitter.com/96GEG7XpMh— Major League Soccer (@MLS) August 9, 2026 Stuðningsmenn á vellinum voru margir hverjir með heimagerð skilti þar sem á voru ritaðar stuðningskveðjur til Messi og fjölskyldu hans. Þá var einnig mínútuþögn fyrir æfingarleik Barcelona gegn Nottingham Forest í gær en Lionel Messi er goðsögn í sögu félagsins og Jorge var með honum á Spáni er Messi var ungur að árum, aðeins 13 ára gamall, keyptur til félagsins. Í yfirlýsingu þakkaði Barcelona Jorge Messi fyrir hans staðfasta samband við félagið. „Fyrir að treysta okkur fyrir upphafinu og sigursælustu árum Leo á hans knattspyrnuferli.“ Í Argentínu, fyrir framan æskuheimili Messi í Rosario voru lagðir niður fánar og blómvendir. Mínútuþögn var einnig viðhöfð fyrir leiki þar í landi.
Bandaríski fótboltinn Andlát Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Uppgjörið: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Sjá meira